Vill heildarendurskoðun á samkeppnisumhverfi fyrirtækja 21. desember 2008 13:42 Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ármann Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði í gær fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórninni verði falin heildarendurskoðun á samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja. Í greinagerð með tillögunni segir Ármann að til að hægt sé að endurreisa íslenskt viðskipta- og efnahagslíf á sem stystum tíma verði að ríkja öflug samkeppni hér á landi. „Því miður er mikil hætta á að ríkjandi ástand ýti undir samþjöppun og hún verði enn meiri en við höfum upplifað á undanförnum árum. Slíkt getur dregið mjög úr hraða endurreisnarinnar þar sem frumkvæði og framtakssemi þjóðarinnar nær ekki fullum skriðþunga," segir í greinagerðinni. Ármann segir að reynslan sýni að aðgerðir til þess að viðhalda og efla samkeppni stuðli að hraðari endurreisn atvinnulífsins. Nú þegar þjóðin standi frammi fyrir miklum efnahagserfiðleikum í kjölfar bankahrunsins hafi aldrei verið mikilvægara að horfa til framtíðar og undirbúa næstu skref til viðreisnar íslensku efnahagslífi. Samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja sé gallað. „Hringamyndun og krosseignarhald hefur fengið að þrífast hér á landi, fákeppni hefur blómstrað og fyrirtæki hafa misbeitt markaðsráðandi stöðu sinni um áraraðir. Þetta sést glöggt þegar horft er til smásöluverslunar, matvöruiðnaðarins, fjölmiðla- og fjarskiptamarkaðarins, samgöngufyrirtækja og lyfjamarkaðarins svo eitthvað sé nefnt," segir í greinagerðinni Þá segir Ármann jafnframt að verðlag hafi hækkað með veikingu krónunnar. Ef fákeppni eða samkeppnisskortur ríkir á markaðnum muni myndast mikil tregða til verðlækkana síðar Við slíku ástandi verði að sporna og má ljóst vera að forsenda þess sé öflugri samkeppnismarkaður.
Mest lesið Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira