Skemmtilegasta tímabil úrvalsdeildarinnar? Elvar Geir Magnússon skrifar 10. nóvember 2008 20:45
Sparkspekingar telja margir að yfirstandandi tímabil stefni í að verða það skemmtilegasta í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Blaðamenn The Sun tóku saman tíu rök fyrir því að það sé rétt. 10. RobinhoÍmyndið ykkur hvernig Manchester City væri ef Arabarnir hefðu fengið meiri tíma til leikmannakaupa fyrir tímabilið? Robinho var keyptur á lokadegi félagaskiptagluggans fyrir 32 milljónir punda og það ótrúlegasta er að hann virðist hverrar krónu virði. 9. Lokamínúturnar Þegar hefur það gerst í sjö leikjum að sigurmarkið hefur komið í viðbótartíma. Í enn fleiri leikjum hafa úrslitin ráðist á lokamínútunum. Áhorfendum er ráðlagt að fara ekki fyrr af leikjum til að losna við umferðina. 8. Aston Villa Talið var að Manchester City, Tottenham eða Portsmouth væru líklegustu liðin til að blanda sér í baráttuna við fjögur efstu liðin. Aston Villa hefur hinsvegar skellt sér í það hlutverk og ljóst að stóru liðin munu berjast um leikmenn eins og Ashley Young og Gabriel Agbonlahor. 7. Ofurinnköst Rory Delap Þó að þú hrífst líklega ekki af leikstíl Stoke City þá er ekki hægt að neita því að innköstin frá Rory Delap eru gulls ígildi. Hann hefur lagt upp 7 af 13 mörkum Stoke með löngum innköstum. Arsenal var síðasta fórnarlamb.6. Ódýru hetjurnar Til hvers að eyða milljónum þegar þú getur fengið frábæra leikmenn á klink? Litla athygli vakti þegar Wigan fékk Amr Zaki á lánssamningi en í dag fylgjast stórliðin með hverju skrefi leikmannsins. Geovanni er endurfæddur hjá Hull eftir að hafa verið hent í ruslið hjá Manchester City.5. KaupæðiðÞað hefur sjaldan verið jafn mikið líf á lokadegi félagaskiptagluggans eins og fyrir þetta tímabil. Það verður ekki minna fjör í janúar. Manchester City á botnlausan brunn af peningum, Harry Redknapp mun hrista upp í Tottenham og Newcastle þarf að styrkja sig svo fátt eitt sé nefnt.4. Joe Kinnear Þrátt fyrir að fá hundrað tilraunir til að giska á næsta stjóra Newcastle þegar Kevin Keegan hvarf á braut hefði enginn nefnt Joe Kinnear. Hann fékk misjafnar móttökur en hefur heldur betur látið til sín taka og ekki hikað við að rífa kjaft í fjölmiðlum. 3. Tottenham Gamla góða Tottenham. Vonir eru fyrir tímabilið um bjarta tíma en svo reynast óveðursskýin á sínum stað. Byrjun liðsins var sú erfiðasta til þessa en Harry Redknapp er mættur og skútan er farin að stefna í rétt átt.2. Harðari barátta á toppnum Er Manchester United óstöðvandi? Nei langt í frá. Er útilokað að vinna Chelsea á Stamford Bridge? Ekki lengur. Fjögur efstu liðin eru sterkari en nokkru sinni fyrr. Það stefnir í jöfnustu toppbaráttu í langan tíma og jafnvel nýtt nafn í baráttuna?1. Nýliðaveisla Nýliðarnir eru heldur betur samkeppnishæfir og rúmlega það. Hver hefði ímyndað sér Hull með þetta mörg stig á þessum tíma? Rótgróin úrvalsdeildarfélög eru mætt í botnbaráttuna á meðan nýliðarnir eru heldur betur að standa sig.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Fleiri fréttir City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Sjá meira