Seðlabankinn losar nokkuð um gjaldeyrishöft sín 16. desember 2008 16:08
Seðlabanki Íslands hefur gefið út nýjar reglur um gjaldeyrismál að fengnu samþykki viðskiptaráðherra. Meginbreytingar frá fyrri reglum lúta að undanþágum sem veittar eru tilteknum hópum vegna brýnna hagsmuna og því að litlar líkur eru taldar á að viðskipti þeirra muni valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum. Samkvæmt tilkynningu um málið er ríki og sveitarfélögum er veitt undanþága frá reglunum, svo og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkis og sveitarfélaga sem starfa samkvæmt sérlögum. Fyrirtæki sem eru aðilar að fjárfestingarsamningum við íslenska ríkið og fyrirtæki sem fengið hafa leyfi iðnaðarráðherra til olíuleitar eru undanþegin reglunum. Þá er skilanefndum sem skipaðar eru á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki veitt undanþága. Fyrirtæki sem hafa yfir 80% af tekjum og gjöldum erlendis geta sótt um undanþágu til Seðlabankans frá tilteknum greinum reglnanna er varða verðbréfaviðskipti erlendis, lánveitingar og lántökur, ábyrgðir og afleiðuviðskipti, svo og skilaskyldu á gjaldeyri. Seðlabankinn mun birta á vefsíðu sinni lista yfir þau fyrirtæki sem fá undanþágu samkvæmt þessu. Þá eru heimildir viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja til gjaldeyrisviðskipta rýmkaðar. Aðrar minniháttar breytingar lúta m.a. að því að nú er skýrt að ekki eru takmarkanir á beinni fjárfestingu, en athygli er þá vakin á því að ekki er heimil yfirfærsla eða flutningur á fjármunum frá landinu sem tengjast sölu á beinum fjárfestingum. Reglurnar skal endurskoða eigi síðar en 1. mars 2009. Áréttað er að lögin sem reglurnar byggja á eru tímabundin og falla úr gildi í nóvemberlok 2010.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira