Viðskipti innlent

Lánshæfismat ríkisins fer hríðversnandi

Lánshæfismat ríkisins hefur nú hríðversnað á undaförnum vikum sem er til marks um gjörbreytta stöðu ríkissjóðs sem hefur á skömmum tíma farið frá því að vera nánast skuldlaus í að vera einn sá skuldugasti meðal OECD ríkja.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis í tilefni þess að þrjú stæstu matsfyrirtækin hafa nú lækkað einkunnir ríkissjóðs. Auk þess að hafa slæm áhrif á fjármögnunarkostnað ríkisins þá hefur þetta afar slæm áhrif á fjármögnunarkostnað ríkisfyrirtækja sem þurfa að fjármagna sig á erlendum lánsfjármörkuðum.

Fitch, sem lækkaði mat sitt í gær, hefur líkt og S&P og Moody´s áhyggjur af vaxandi skuldaklafa ríkisins. Mikilvægasta verkefnið framundan er að mati Fitch að koma stöðugleika á gengi krónunnar sem gæti verið ærið verkefni vegna þeirra fjárhæða sem eru í eigu erlendra aðila sem eflaust vilja komast út með fé sitt við fyrsta tækifæri.

Fitch áætlar að stöðutaka erlendra aðila í krónunni nemi að minnsta kosti 400 milljörðum kr. Fitch segir að í gegnum tíðina hafi það sannast að sveigjanleiki íslenska hagkerfisins sé mikill og getan til að takast á við áföll því mikil.

Hinsvegar segir Fitch að nú sé önnur staða uppi þar sem áfallið sé mun stærra en við höfum áður séð og þá sé ytra umhverfið afar erfitt en flest stærstu viðskiptalönd Íslands séu nú á leið inn í versta samdrátt sem sést hefur í áratugi. Þá hafi álverð lækkað mjög mikið að undanförnu á heimsmarkaði. Þetta mun gera það að verkum að verulega mun reyna á íslenska hagkerfið á næstu árum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×