Viðskipti innlent

Landsframleiðslan dróst saman um 0,8% að raungildi

Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,8% að raungildi á 3. fjórðungi ársins 2008 frá sama fjórðungi árið áður. Á sama tíma má ætla að þjóðarútgjöld hafi dregist saman um tæplega 10% þar sem einkaneysla dróst saman um tæplega 7% og fjárfesting um tæplega 28%.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum sem birt hafa verið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samneysla óx hins vegar um 3%. Þá er talið að útflutningur hafi vaxið um tæplega 18% en innflutningur hafi dregist saman um tæplega 10%.

Þessi þróun veldur því að verulega dró úr halla á vöru- og þjónustuviðskiptum samanborið við 3. ársfjórðung 2007 og því dregst landsframleiðsla mun minna saman en sem nemur samdrætti þjóðarútgjalda.

Innflutningur dróst saman um tæplega 10% en útflutningur óx um tæplega 18%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 3,4% á 3. ársfjórðungi þessa árs frá fyrri ársfjórðungi sama árs en óx um 4,7% á 2. ársfjórðungi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×