Heimili og fyrirtæki njóta góðs af lækkandi millibankavöxtum 18. desember 2008 11:45
Vextir á millibankamarkaði í London, svokallaðir LIBOR vextir, hafa lækkað verulega á undanförnum mánuðum í helstu myntum. Þessi þróun er jákvæð fyrir íslensk fyrirtæki og heimili þar sem vaxtabyrði af erlendum lánum lækkar. Fjallað er um málið í Morgunkorni greinignar Glitnis. Þar segir að frá miðjum októbermánuði hafa 3ja mánaða LIBOR vextir í Bandaríkjadollar lækkað úr 7% í ríflega 2%, samskonar vextir í evrum hafa lækkað úr 5,4% í 3,4%, í svissneskum franka hafa vextirnir farið úr 4,8% í 1,4% og vextir á 3ja mánaða millibankalánum í pundum úr rúmum 7% í 3,6% á tímabilinu. Vextir í japönskum jenum hafa hins vegar breyst tiltölulega lítið. Helsta ástæða þessarar þróunar er umfangsmikil lækkun stýrivaxta í flestum helstu myntum. Þessi þróun LIBOR-vaxta er að öðru jöfnu góð tíðindi fyrir þau heimili og fyrirtæki sem skulda gengistryggð lán. Almennt eru vaxtakjör á slíkum lánum beintengd þróun 3ja mánaða LIBOR-vaxta í viðkomandi myntum, og síðan bætt við tilteknu álagi. Sú vaxtaprósenta sem skuldarar gengistryggðra lána greiða breytist því alla jafna sem nemur prósentustigsbreytingu LIBOR-vaxtanna. Því er almennt spáð að vextir lækki frekar á evrusvæði og í Bretlandi, auk þess sem líklegt er að álag millibankavaxta gagnvart stýrivöxtum minnki jafnt og þétt eftir því sem ótti manna við frekara hrun fjármálastofnana minnkar.Því má búast við að vaxtakjör á erlendum lánum landsmanna verði tiltölulega hagstæð næsta kastið, þótt gengisfall krónunnar hafi vissulega sett strik í reikninginn hvað greiðslubyrði af þessum lánum varðar og skapi ákveðna óvissu um greiðslubyrði þeirra í framtíð.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira