United neitar sögum um Ronaldo Elvar Geir Magnússon skrifar 18. desember 2008 10:39
Manchester United þarf reglulega að neita fréttum varðandi Cristiano Ronaldo. Nú hefur félagið neitað þeim sögusögnum að félagið hafi samið við Real Madrid um að leikmaðurinn fari til Spánar næsta sumar. Þessar sögur hafa ekki farið vel í stjórnarmenn Manchester United sem áttu í eftirminnilegu „stríði" við stjórnarmenn spænska félagsins um Ronaldo síðasta sumar. Spænskt dagblað hélt því fram í gær að Real Madrid væri búið að ganga frá samkomulagi um kaup á Ronaldo frá Manchester United næsta sumar. Það greindi frá samtali sem Pedro Trapote, náinn samstarfsfélagi Calderon, átti við ónafngreindan mann eftir leik Real Madrid og Barcelona um síðustu helgi. Samtalið var tekið upp. „Ef þú ert að spyrja mig hvað við ætlum að gera nú þá get ég sagt þér að við höfum þegar samið við besta leikmanninn sem kemur nú í sumar," er haft eftir Trapote. „Ertu að meina Cristiano?" var svarið. „Þann besta af þeim bestu. Það er Cristiano og enginn annar. Við skulum þó ekki hafa hátt um þetta." „Af hverju má ekkert segja um þetta? Það væri kannski viðeigandi nú fyrst gengið hefur verið slæmt. Ekki veitti af jákvæðum fréttum." „Nei, það er best að segja sem minnst. Það eru klásúlur í samningnum sem gera það að verkum að við getum ekkert sagt. Það myndi henta okkur vel að segja frá því nú en við ættum ekki að gera það. En þetta hljómar samt ágætlega, er það ekki?"
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Sjá meira