Kaupþing er með hæstu vextina á erlendum lánum 18. desember 2008 15:20
Frétt greiningar Glitnis um þann hag sem heimili og fyrirtæki hafa af lækkandi millibankavöxtum hefur vakið athygli. Fólk sem hefur haft samband við visir.is bendir á að þeir sem séu með myntkörfulán hjá Kaupþingi njóti ekki eins mikillar lækkunnar og hjá öðrum bönkum. Fram kom m.a. í frétt um málið að frá því í október hafa millibankavextir í svissneskum frönkum farið úr 4,8% í 1,4%. Einn viðmælandi visir.is benti á að samkvæmt þessu væri myntkörfulán hjá Byr í svissneskum frönkum nú með 4,65% vexti en hjá Kaupþingi væru þetta 7,89% vextir. Munaði þar því 3,24%. Hjá Byr væri álagið 3,25% og síðan bættust millibankavextirnir við en hjá Kaupþingi væri álagið 2,25% og síðan bættust kjörvextir við sem bankinn ákveður sjálfur en þeir nema nú 5,59%. Kjörvextir Kaupþings voru til umræðu á vefsíðu Neytendasamtakanna í byrjun síðasta mánaðar eftir að samtökin höfðu fengið nokkur mál inn á borð vegna myntkörfulána Kaupþings til fasteignakaupa. Málið snýst um hækkun kjörvaxtaálags sem lántakendur telja að sé ekki samkvæmt lögum. Kaupþing hefur hækkað þetta álag á undanförnum tveimur árum. Þar segir: „Vextir á myntkörfulánum Kaupþings kallast kjörvextir og eru samsettir úr millibankavöxtum (LIBOR) og sérstöku álagi sem Kaupþing ákveður einhliða og kallast kjörvaxtaálag. Millibankavextir (libor vextir) eru breytilegir og fara eftir kjörum á markaði hverju sinni. Ef t.d. evrópski seðlabankinn hækkar stýrivexti leiðir það oftast til þess að millibankavextir í evrum hækka. Myntkörfulán eru yfirleitt samsett úr tveimur eða fleiri myntum og millibankavextir á þeim geta hækkað og lækkað yfir lánstímann. Þetta þýðir að vextir á láninu eru breytilegir og ætti lántakendum að vera það ljóst. Það sem lántakendur virðast ekki hafa vitað og ekki verið gerð grein fyrir er að Kaupþing er með sérstakt kjörvaxtaálag sem bætist ofan á millibankavextina. Ekki er hægt að sjá hvert kjörvaxtaálagið er hverju sinni því það kemur ekki fram í gjaldskrá eða á lánsamningi. Til að reikna kjörvaxtaálagið út þarf því að draga millibankavexti frá kjörvöxtum og þá sést hvert álagið er."Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi kemur á móti þessum vaxtakjörum bankans að þau séu endurskoðuð mun örar en hjá öðrum bönkum eða á 3ja mánaða fresti. Næsta vaxtaákvörðun er um áramótin og þá verður tekið tillit til þess hve mikið millibankavextir hafa lækkað á ársfjórðungnum.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira