Enski boltinn

Hræringar í eignarhaldi Arsenal

Elvar Geir Magnússon skrifar

Tveir stórir hluthafar hættu skyndilega í stjórn eignarhaldsfélags Arsenal. Peter Hill-Wood segist ætla að gera sitt besta til að halda eignarhaldinu á félaginu en það gæti þó skipt um hendur.

Lafði Nína Bracewell-Smith yfirgaf stjórnina í gær en hún á þriðja stærsta hlutinn í Arsenal, 15.9%. Ef auðjöfurinn Alisher Usmanov eignast hennar hlut verður hann meirihlutaeigandi í félaginu með því að ná samtals 30% hlut.

Bandaríkjamaðurinn Stan Kroenke á einnig möguleika á að eignast meirihluta í félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×