Pálmi tjáir sig ekki um milljarðana þrjá frá FL 9. nóvember 2008 13:02 Pálmi Haraldsson
Sumarið 2005 lét Hannes Smárason, þá stjórnarformaður FL, flytja án heimildar þrjá milljarða króna af reikningum FL til Kaupþings í Lúxemborg, til þess að hjálpa Pálma Haraldssyni við að greiða fyrir kaupin á lággjaldaflugfélaginu Sterling í Danmörku. Þetta kemur fram í grein Agnesar Bragadóttur blaðamanns í Morgunblaðinu í dag. Þegar upp komst um gjörninginn varð allt vitlaust í FL, skrifar Agnes. Endurskoðendur neituðu að skrifa upp á sex mánaða uppgjörið, nema þessu yrði kippt í liðinn, stjórn og forstjóri urðu sömuleiðis vitlaus og sökuðu Hannes um að hafa þverbrotið lög með þessum fjármagnsflutningum almenningshlutafélags, án þess að hafa til þess nokkra heimild. Kaupþing í Reykjavík reddaði málum og flutti aftur þrjá milljarða yfir til FL og endurskoðendur skrifuðu því hamingjusamir undir »endurskoðað« sex mánaða uppgjör. Enn fremur hefur Agnes heimildir fyrir því að stjórn og forstjóri FL hafi enn verið bullandi óhamingjusöm með hátterni Hannesar stjórnarformanns og stjórnin sagði af sér, fyrst þrír stjórnarmenn, síðan aðrir þrír og loks ákvað Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri að hætta, með 120 milljóna króna starfslokasamning í vasanum, eftir afar stuttan stans á forstjórastól. Ragnhildur hefur aldrei upplýst hvað gerðist og telur Agnes að hún hafi ugglaust lofað að þegja, gegn 120 milljóna króna plástrinum. Í samtali við Vísi nú í hádeginu vildi Pálmi Haraldsson ekkert tjá sig um málið. Ekki náðist í Hannes Smárason.
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira