Viðskipti innlent

Björn Bjarnason segir gagnsæi skorta í störfum FME

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að gagnsæi skorti í störfum Fjármálaeftirlitsins (FME). Þetta kemur fram á vefsíðu Björns í dag. Þar er ráðherran að fjalla um frumvarp sitt um sérstakan saksóknara til að rannsaka bankahrunið.

„Því miður hefur margt gerst, sem vekur tortryggni og jafnvel ótta um, að ekki sé gætt fyllstu varúðar við meðferð gagna eða eigna eftir hrunið., „ segir Björn.

„Að mínu áliti er gagnsæi ekki nægilega mikið í störfum fjármálaeftirlitsins, meira að segja ekki gagnvart viðskiptaráðherra eins og birst hefur í umræðum um athugun KPMG á Glitni banka - umræðum, sem leiddu loks til þess, að KPMG dró sig í hlé. Í því sambandi hefðu viðbrögð við kortlagningu á vegum ríkissaksóknara á fyrstu stigum málsins, átt að hvetja til varúðar. Þar taldi ég ómaklega vegið að grandvörum embættismönnum, en allt kom fyrir ekki. „










Fleiri fréttir

Sjá meira


×