Enski boltinn

Brynjar Björn tryggði Reading stig

Elvar Geir Magnússon skrifar

Brynjar Björn Gunnarsson skoraði jöfnunarmark Reading í 2-2 jafntefli gegn Cardiff á útivelli ensku 1. deildinni í kvöld. Reading lék einum færri stærstan hluta leiksins en Andre Bikey fékk rauða spjaldið eftir hálftíma.

Brynjar Björn kom inn sem varamaður stuttu eftir að Bikey var rekinn af velli. Cardiff var 2-1 yfir í hálfleik en á 51. mínútu jafnaði Brynjar í 2-2 sem urðu lokatölurnar. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í vörn Reading.

Aron Einar Gunnarsson byrjaði á varamannabekk Coventry sem gerði 1-1 jafntefli við Swansea. Hann kom inn sem varamaður á 69. mínútu, tveimur mínútum eftir að Swansea komst yfir. Daniel Fox skoraði svo jöfnunarmak Coventry á 87. mínútu.

Hér að neðan má sjá öll úrslit kvöldsins í 1. deildinni:

Birmingham - Ipswich 2-1

Blackpool - Sheff Wed 0-2

Bristol C - Watford 1-1

Cardiff - Reading 2-2

Coventry - Swansea 1-1

Derby - Preston 2-2

Doncaster - Nott For 0-0

Norwich - Crystal Palace 1-2

Sheff Utd - Wolves 1-3

Southampton - Plymouth 0-0

QPR - Charlton 2-1




Fleiri fréttir

Sjá meira


×