Ríkið gæti orðið stærsti hluthafi Byrs 21. nóvember 2008 18:30
Imon, félag Magnúsar Ármanns, keypti bréf í Landsbankanum af bankanum sjálfum fyrir níu milljarða stuttu fyrir þjóðnýtingu.Tæplega átta prósenta hlutur Imons í Byr gæti verið í uppnámi vegna viðskiptanna. Mikil dulúð hefur ríkt yfir þessum viðskiptum Magnúsar Ármanns og Landsbankans sem hljóðuðu upp á 4,05% hlut að verðmæti tæplega níu milljarða. Það var eignarhaldsfélag Magnúsar, Imon ehf, sem keypti hlutinn en það félag er einnig stærsti hluthafinn í Byr. Heimildir fréttastofu herma að Landsbankinn hafi sjálfur selt Magnúsi bréfin og lánað honum fyrir þeim. Ekki liggur fyrir hvort Magnús hafi sett bréf Imons í Byr sem veð á móti bréfunum í Landsbankanum en ef svo er er hann sennilega búinn að tapa þeim og Nýi Landsbankinn verður á endanum stærsti hluthafi Byrs. Ljóst er að Magnús tapar verulega á þessum viðskiptum og ekki síður Nýi Landsbankinn sem þarf að afskrifa allt að sex milljörðum eftir því sem heimildir Fréttastofu herma. Þá herma heimildir fréttastofu að Fjármálaeftirlitið sé komið með þessi viðskipti Imons og Landsbankans inn á sitt borð til skoðunar. Ekki náðist í Magnús Ármann við vinnslu þessarar fréttar.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira