Ramos vill breyta hugarfarinu hjá Spurs 23. janúar 2008 17:22 Juande Ramos vill rífa Tottenham upp úr meðalmennskunni Nordic Photos / Getty Images
Knattspyrnustjórinn Juande Ramos vann sér stóran sess í hjörtum stuðningsmanna Tottenham í gær þegar hann varð fyrsti stjórinn á öldinni til að stýra liðinu til sigurs gegn erkifjendunum í Arsenal. Tottenham sló granna sína út úr bikarkeppninni með 5-1 sigri á heimavelli og var þetta stærsti sigur Tottenham á Arsenal í meira en tvo áratugi. Ramos segir eitt ákveðið verkefni hafa forgang hjá félaginu og það sé að breyta hugarfarinu. "Fyrsta skammtímaverkefnið sem beið okkar var að koma liðinu upp úr fallbaráttunni, því það var komið í vond mál í deildinni þegar við tókum við. Við höfum nú um það bil hálft tímabil til að klífa töfluna og ætlum okkur stóra hluti í bikarkeppnunum. Þetta eru skammtímaplönin okkar," sagði Ramos. Þegar kemur að langtímamarkmiðum klúbbsins, hefur Ramos skýra stefnu. "Mér finnst félag eins og Tottenham hafa gríðarlega möguleika á að gera góða hluti og það var ástæðan fyrir því að ég ákvað að koma hingað. Hver einasti maður í félaginu þarf hinsvegar að sannfæra sjálfan sig um að við eigum meira skilið." "Við verðum að hafa metnað og segja við sjálfa okkur að við þurfum að taka næsta skref. Félagið hefur allt sem til þarf til að fara lengra og þegar við erum búnir að troða þessu hugarfari inn hjá öllum - er hægt að fara að skoða framtíðina og setja langtímamarkmið," sagði Ramos.
Enski boltinn Mest lesið Gætt af Interpol og sagt að fela fána fyrir leikinn við Ísland Körfubolti Uppgjörið: Breiðablik - Athlone Town 3-1 | Tvö mörk á tveimur mínútum og Blikar unnu Fótbolti Tveir nýliðar í landsliðshópnum Fótbolti Ástin sögð ástæða þess að Sancho vilji ekki Roma Fótbolti Hæsti fótboltamaður í heimi Fótbolti Arnar kynnti fyrsta hópinn í undankeppni HM Fótbolti Rio grínaðist með söngva Liverpool fólksins Enski boltinn Bein útsending: Landsliðsmenn hita upp fyrir EM í Pallborðinu Körfubolti Má ekki skipta um föt í búningsklefa Arsenal en má spila með liðinu Enski boltinn Strákarnir ekki fengið neinar hótanir Körfubolti Fleiri fréttir Albert bjartsýnn á að Eze sé lokapúslið: „Komin þvílík breidd í þetta“ Reiddist eigin aðdáendum en baðst svo afsökunar Rio grínaðist með söngva Liverpool fólksins Má ekki skipta um föt í búningsklefa Arsenal en má spila með liðinu Hákon Rafn hélt hreinu þegar Brentford fór áfram en þrjú Íslendingalið úr leik Gordon bað bæði liðsfélagana og Van Dijk afsökunar Palace gerir hosur sínar grænar fyrir Akanji Borga fjörutíu milljónir punda fyrir kantmann sem skoraði tvö mörk í fyrra Höfnuðu fimmtíu milljóna punda tilboði í Strand Larsen Slot gagnrýnir Newcastle: „Þetta var ekki fótboltaleikur“ Segir að Dowman sé eins og Messi Gagnrýndu Bruno: „Hann átti skelfilegan leik“ Sjáðu sigurmark Rios og öll hin frá St. James' Park Hélt uppi meira en aldar gamalli hefð Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Rio setti nýtt Liverpool met Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Selja „Isak er rotta“ treyjur fyrir utan völlinn og eldspýtur fylgja með Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks „Getur ekki látið 140 milljóna punda mann í varaliðið“ Isak utan vallar en þó í forgrunni Saka frá í mánuð og missir af Liverpool Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Rooney feginn að Dowman tók ekki vítið Fernandes ósáttur: „Dómarinn baðst ekki afsökunar“ Sjáðu Grealish fara á kostum og öll mörkin í gær Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri Fullkomin byrjun Everton á nýja heimilinu Áfram í marki Man. Utd eftir mistökin Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Sjá meira