Norræni fjárfestingabankinn setur á laggirnar ráðgjafahóp 7. júlí 2008 14:40
Norræni fjárfestingabankinn, NIB, hefur sett á laggirnar óformlegan ráðgjafahóp með það að markmiði að nýta sér þekkingu og reynslu sem til staðar er í alþjóðlegu viðskiptalífi. Sjö sérfræðingar skipa hópinn og eru þeir allir með mikla reynslu á sviðum sem skipta miklu fyrir bankann. Ráðgjafahópurinn mun leggja til nýjar hugmyndir og tillögur að þróun viðskiptasviðs NIB. Fulltrúar í hópnum, eru einstaklingar með mikla reynslu á sínu sviði og munu þeir leggja fram hugmyndir og tillögur til stjórnar NIB. Tillögurnar munu taka á málum sem eru mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun í starfsemi bankans. Sérfræðingahópurinn mun ekki taka ákvarðanir, heldur verða ráðgjafavettvangur. Hópurinn mun funda tvisvar til þrisvar á ári. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Norðurlöndum í dag. „Undanfarin ár hefur NIB breytt starfsemi sinni til að aðlagast breytingum í hnattvæddum heimi. Jafnvel þó að bankinn sé vel í stakk búinn til að takast á við þessar áskoranir, er það mjög mikilvægt að fylgjast með þróuninni og bregðast við stöðugum breytingum með ákvörðunum sem byggja á góðri sérfræðingaráðgjöf. Með því að fá mat utan að komandi ráðgjafa munum við auka breiddina í stefnumarkandi starfsemi NIB. Ég er þess fullviss að nýi ráðgjafahópurinn muni reynast vel og að hann muni styrkja og efla stjórn NIB", segir Johnny Åkerholm starfandi forstjóri NIB. Í ráðgjafahópnum eru: Paul Bulteel, fyrrum framkvæmdastjóri Eurelectric, samtaka raforkufyrirtækja, frá Belgíu. Björn Carlson, stofnandi Björn Carlsons Eystrasaltsstofnunarinnar frá Svíþjóð. Jannik Lindbaek, fyrrum stjórnandi meðal annars NIB og IFC og formaður meðal annars Statoil frá Noregi. Bodil Nyboe Andersen, fyrrum forstjóri Seðlabanka Danmerkur, frá Danmörku. Michael Sohlman, starfandi framkvæmdastjóri Nóbelstofnunarinnar, frá Svíþjóð. Christoffer Taxell, sem er reyndur stjórnandi í viðskiptalífinu og einnig í stjórnmálum, skrifstofustjóri hjá Åbo Akademi, frá Finnlandi. Linnar Viik, netsérfræðingur í fararbroddi og meðal annars fyrrum ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í Eistlandi. NIB er fjölþjóðleg fjármálastofnun í eigu átta landa: Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar einkarekin og opinber verkefni í og utan aðildarríkjanna.
Mest lesið Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Viðskipti erlent Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira