Rannveig Rist maður ársins hjá Frjálsri verslun 29. desember 2008 11:53
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, er maður ársins 2008 í íslensku atvinnulífi, að mati dómnefndar Frjálsrar verslunar. Rannveig hlýtur þennan heiður fyrir mikla leiðtogahæfileika, hæfni við rekstur álversins í Straumsvík, farsælan feril, frumkvöðlastarf á sviði menntunar í stóriðju og forystu í málefnum kvenna í atvinnulífinu um langt skeið. Rannveig hefur verið forstjóri álversins í Straumsvík í tólf ár og allan þann tíma hefur fyrirtækið verið rekið með hagnaði. Hún tók sig til síðastliðið vor, þegar henni hætti að lítast á blikuna í efnahagsmálum þjóðarinnar, og greiddi upp allar skuldir álversins. En álverið í Straumsvík er hlutafélag sem greiðir fyrir sínar framkvæmdir sjálft en færir ekki kostnaðinn yfir á móðurfélagið. Alcan á Íslandi hf. hefur frá árinu 2007 verið í eigu Rio Tinto sem er stærsti álframleiðandi í heimi. Rannveig er vélvirki, vélstjóri og vélaverkfræðingur. Hún er brautryðjandi og gerði innrás í karlaveldið þegar hún tók vélstjórapróf 4. stigs frá Vélskóla Íslands og síðar sveinspróf í vélvirkjun og varð þar með vélfræðingur. Þá var hún með fyrstu konum sem varð vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er fyrst kvenna til að gegna forstjórastarfi í stórfyrirtæki á Íslandi. Þetta ár er sögulegt fyrir áliðnaðinn. Í fyrsta sinn eru áætlaðar útflutningstekjur af áli meiri en af fiski á þessu ári.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira