Flugvellir og ferðaskrifstofur tapa miklu á gjaldþroti Sterling 29. október 2008 11:37
Bæði rekstarfélög flugvalla og ferðaskrifstofur munu tapa miklum fjárhæðum á gjaldþroti danska flugfélagsins Sterling. Eftir því sem segir á skandinavíska ferðafréttavefnum takeoff.dk mun Kastrup-flugvöllur missa tíunda hvern farþega sem fer um völlinn og í Billund er hlutfallið 20 prósent. Á síðasta ári fór rúmlega 21 milljón farþega um Kastrup, þar af um tvær milljónir á vegum Sterling. Þá reyndust farþegar Sterling um 22,3 prósent af þeim 2,5 milljónum farþega sem fóru um Billund-flugvöll í fyrra. Þá tapa minni ferðaskrifstofur tugmilljónum króna á gjaldþrotinu. Sumar þeirra, eins og Skan Rejser, hafa selt pakkaferðir þar sem flogið er með Sterling og höfðu greitt fyrir flugið nú þegar. Þeir fjármunir eru nú tapaðir, um 5-6 milljónir danskra í tilviki Skan Rejser. Forstjóri Skan Resjer, Torben Sivertsen, segir þó að reynt verði að semja við önnur flugfélög að fljúga með farþega í stað Sterling en ef það takist ekki þurfi að aflýsa ferðunum og endurgreiða farþegunum. Sivertsen sendir íslenskum eigendum Sterling tóninn og segir þá hafa brugðist trausti ferðaskrifstofunnar. Forsvarsmenn Skan Rejser hafi ítrekað spurt um stöðu Sterling en alltaf verið sagt að aldrei hafi fleiri flugferðir selst. „Það hefur komið fram að Íslendingar hafi átt í vandræðum en þegar okkur er sagt að þeir (Sterling) eigi enn í viðskiptum þá treystum við því," segir Sivertsen. Gjaldþrot Sterling sé því eins og sprenging í augum ferðaskrifstofunnar.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira