Skoðun

Sumarfólk hefur rétt hjá VR

Við viljum leiðrétta misskilning sem fram kemur í innsendri grein Valgerðar Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra Félagsráðgjafafélags Íslands, í Fréttablaðinu 21.06 2007.

Þar heldur hún því fram að í mörgum stéttarfélögum öðlist skólafólk í sumarvinnu lítil sem engin réttindi í stéttarfélagi sínu fyrir greidd iðgjöld. Þetta er ekki rétt hvað okkur varðar. Ef greidd eru iðgjöld til VR í a.m.k. einn mánuð fer hluti þess í varasjóð VR sem má nota t.d. til líkamsræktar, gleraugnakaupa o.fl. Auk þess myndast réttindi í starfsmenntasjóði sem nýta má til greiðslu námskeiðs- og skólagjalda, réttur á aðstoð kjaramáladeildar og réttur til sjúkradagpeninga.

Þegar greitt er í stuttan tíma myndast auðvitað ekki mikil réttindi í sjóðum en það eru réttindi sem safnast upp og getur munað um þegar komið er út á vinnumarkaðinn eftir að skólanámi lýkur. Það er einnig mikilvægt að hafa í huga að kjarasamningar VR móta vinnuumhverfi sumarstarfsmanna eins og annarra á vinnumarkaði og skólafólk í sumarstörfum leitar í miklum mæli til VR við innheimtu launa.

Við svörum að sjálfsögðu ekki fyrir önnur stéttarfélög en þykir rétt að þetta komi fram til að fyrirbyggja misskilning um þau réttindi sem fylgja aðild að VR.

Höfundur er sviðsstjóri þjónustusviðs VR.




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×