Að semja af sér við Norðmenn 4. maí 2007 06:00 Í Ólafs sögu helga segir frá því er Ólafur konungur hinn digri biður Alþingi um að gefa sér Grímsey sem vináttuvott. Flestir þingmanna vildu verða við bón hans enda væri hann frændi þeirra og vinur. En þá tók til máls Einar Þveræingur og sagði að fengi kóngur eynna þá yrði þess ekki langt að bíða að langskip hans sigldu inn norðlenska firði (les: jöfur mun nota eyjuna sem stökkpall fyrir innrás). Eftir að hafa hlýtt á mál Einars snerist þingmönnum hugur, þeir höfnuðu málaleitan konungs. En nú er öldin önnur, ríkisstjórn Geirs Haarde hefur gert samninga við Norðmenn um að norsk langskip... ég meina herþotur skuli staðsettar á Keflavíkurflugvelli. Fyrir utan allt annað vont sýnir þetta að Geir, flokkur hans og litli flokkurinn eru fastir í hugarfari kalda stríðsins. Eftir að Kaninn fór fékk stjórnin panikk af verri gerðinni, haldandi líklega að Rússarnir væru á leiðinni. Hún knékraup öllum nágrannaþjóðunum og grátbað um allrameinabótina herþotur. En Geir og félagar skilja ekki að ekkert ríki ógnar öryggi Íslands, alla vega ekki svo lengi sem við erum í NATÓ. Menn mega svo minnast þess að hið varnarlausa land Kosta Ríka fær að vera í friði þótt endalaus vígaferli séu í nágrannaríkjunum. Aftur á móti gætu hryðjaverkamenn ógnað þjóðinni, ekki síst ef þeir uppgötva að hún var sett nauðug viljug á lista vígfúsra þjóða af Davíð Oddssyni og félögum (þeirra á meðal Geir). Til eru hryðjuverkamenn sem vilja Norðmönnum illt út af skopmyndamálinu. Kannski þeir noti tækifærið og sprengi nokkrar norskar þotur í loft upp á Keflavíkurflugvelli. Ef til vill fer flugstöðin með og nokkur hundruð manns. Hvað sem því líður þá er aðeins til eitt ríki sem gæti ógnað öryggi Íslands – NOREGUR! Sjálfur hef ég búið í Noregi í fjölda ára og þekki land og þjóð. Þó að flestir Norðmenn séu ágætis fólk og okkur velviljað þá eru enn til Nojarar sem telja að Ísland ætti helst að vera fylki í Noregi. Þeir hafi verið rændir sínu íslenska skattlandi árið 1814, eins og norskur sagnfræðingur orðaði það svo skemmtilega: „Það er lítil von til að við fáum skattlöndin OKKAR tilbaka“ (undirskilið: litlar líkur á að réttmætum eigum okkar verði skilað aftur). Altént eru vissir hópar manna hér í Noregi teknir að heimta að varnarsamstarfið verði bundið því skilyrði að Íslendingar viðurkenni Svalbarðasvæðið. Með þessum samningum hefur Geir gefið Norðmönnum hreðjatak á Íslendingum sem þeir munu nota eftir bestu getu í deilum þjóðanna um fisk og fleira. Finnst Geir ekki nóg að hafa gefið Bandaríkjumönnum rétt til að taka loftrýmið íslenska yfir ef hættuástand skapist í heiminum? Hver á að skilgreina „hættuástand“? Finnst honum ekki nóg að hafa látið Kanana fara með sig eins og hund er þeir lögðu herstöðina niður? Geir hafði ekki einu sinni manndóm í sér til að segja varnarsamningum upp. Taki Geir pokann sinn og hverfi úr stjórnarráðinu að kosningum afstöðnum! Höfundur er prófessor í heimspeki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar