Á pari við spár 2. mars 2007 05:00
Hagnaður Actavis árið 2006 nam níu milljörðum króna. Vöxtur félagsins á síðasta ársfjórðungi var mestur í Mið- og Austur-Evrópu og Bandaríkjunum. Actavis skilaði tæplega 102,7 milljóna evra hagnaði á árinu 2006 sem nemur rúmlega níu milljörðum króna. Hagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi nam 32,5 milljónum evra, um 2,9 milljörðum íslenskra króna. Tekjur félagsins rúmlega tvöfölduðust á árinu og námu 1.379 milljónum evra, 121 milljarði íslenskra króna. EBITDA-framlegðarstig, hlutfall rekstrarhagnaðar fyrir skatta af rekstrartekjum, var 20,8 prósent. Tekjur á síðasta fjórðungi jukust um 80 prósent í 350,2 milljónir evra. EBITDA-framlegð á fjórðungnum nam 19,9 prósentum. Hagnaður Actavis var að mestu leyti í takti við spár greiningardeilda Glitnis og Landsbankans. Tekjur og framlegð voru hins vegar undir væntingum þeirra. Greiningardeild Kaupþings gerði ráð fyrir minni hagnaði á fjórðungnum, eða 23,5 milljónum króna. Skýrist það meðal annars af því að gengishagnaður ársins var mun hærri en gert var ráð fyrir. Vöxtur Actavis á fjórðungnum var mestur í Mið- og Austur-Evrópu og Asíu. Þar jókst sala um 31,3 prósent og nam 148,6 milljónum evra. Þá var vöxtur einnig góður í Bandaríkjunum. Salan jókst einnig Vestur-Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Þar stóðu tekjur hins vegar í stað vegna áhrifa af miklum verðlækkunum í Þýskalandi. Af sömu ástæðu varð samdráttur í sölu til þriðja aðila um 25,5 prósent. Á kynningarfundi uppgjörsins í gær kom fram að bandaríska lyfjaeftirlitið hefði veitt Actavis viðvörun í kjölfar skoðunar á starfsemi félagsins í Little Falls í New Jersey. Segjast stjórnendur hafa brugðist við henni. Hún muni engin fjárhagsleg áhrif hafa á árinu 2007.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira