Biðlistar eftir hjúkrunarrými 19. apríl 2007 05:00 Samfylkingin kveinkar sér undan umræðu um ábyrgð flokksins á biðlistum eftir hjúkrunarými í Reykjavík. Slík grein birtist hér á þessum vettvangi 17. apríl eftir Guðríði Arnardóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi. Í 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir að sveitarstjórnir eigi að stuðla að því að aldraðir geti búið við eðlilegt heimilislíf svo lengi sem verða má. Þá segir: „Jafnframt verði tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf.“ Skv. lögum um málefni aldraðra skipa sveitarstjórnir í þjónustuhóp aldraðra, sem gerir m.a. tillögur til sveitarstjórna um öldrunarþjónustu og metur vistunarþörf aldraðra. Ábyrgð sveitarfélaga á að tryggja öldruðum stofnanaþjónustu þegar þeim brestur heilsa og þrek til sjálfstæðrar búsetu er því skýr. Þótt ríkið taki þátt í kostnaði við uppbyggingu öldrunarstofnana og greiðir stóran hluta af rekstrarkostnaði þeirra, er það á ábyrgð sveitarfélaga að meta þörf fyrir hjúkrunarrými. Þar liggja upplýsingar um þarfir íbúa fyrir samfélagslega þjónustu á hverjum tíma. Flest sveitarfélög landsins hafa gegnt þessari skyldu sinni með ágætum. Þegar í heildina er litið eru næg hjúkrunarrými hér á landi til að fullnægja þörf fyrir hjúkrunarrými fyrir aldraða. Þeim er hins vegar misdreift um landið. Skortur á hjúkrunarrýmum er fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík. Skv. lögum eiga sveitarfélög að leggja til 15% af byggingarkostnaði hjúkrunarheimila. Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík brugðust borgaryfirvöld við skorti á hjúkrunarrýmum m.a. með byggingu Droplaugarstaða með 65% kostnaðarhlutdeild á árinu 1981 og Seljahlíðar með 100% hlutdeild á árinu 1986. Ekkert slíkt framtak átti sér stað í tíð R-listans til að bregðast við sama vanda. Hins vegar liggja nú þegar fyrir áætlanir um byggingu 400 hjúkrunarrýma á næstu árum að mestu á höfuðborgarsvæðinu. Það er því ljóst að R-listinn sofnaði á verðinum í þau 12 ár sem hann sat við stjórnvölinn í Reykjavík. Því finnst mér ótrúlega djarft leikið af Samfylkingunni að slá upp auglýsingu um að flokkurinn vildi byggja 400 ný hjúkrunarrými á næstu 1 1/2 ári, þegar meginhluti vandans er á ábyrgð þeirra sjálfra! Hverra er „vanrækslusyndin“? Ég spyr! Höfundur er alþingismaður í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Samfylkingin kveinkar sér undan umræðu um ábyrgð flokksins á biðlistum eftir hjúkrunarými í Reykjavík. Slík grein birtist hér á þessum vettvangi 17. apríl eftir Guðríði Arnardóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Kópavogi. Í 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga segir að sveitarstjórnir eigi að stuðla að því að aldraðir geti búið við eðlilegt heimilislíf svo lengi sem verða má. Þá segir: „Jafnframt verði tryggð nauðsynleg stofnanaþjónusta þegar hennar er þörf.“ Skv. lögum um málefni aldraðra skipa sveitarstjórnir í þjónustuhóp aldraðra, sem gerir m.a. tillögur til sveitarstjórna um öldrunarþjónustu og metur vistunarþörf aldraðra. Ábyrgð sveitarfélaga á að tryggja öldruðum stofnanaþjónustu þegar þeim brestur heilsa og þrek til sjálfstæðrar búsetu er því skýr. Þótt ríkið taki þátt í kostnaði við uppbyggingu öldrunarstofnana og greiðir stóran hluta af rekstrarkostnaði þeirra, er það á ábyrgð sveitarfélaga að meta þörf fyrir hjúkrunarrými. Þar liggja upplýsingar um þarfir íbúa fyrir samfélagslega þjónustu á hverjum tíma. Flest sveitarfélög landsins hafa gegnt þessari skyldu sinni með ágætum. Þegar í heildina er litið eru næg hjúkrunarrými hér á landi til að fullnægja þörf fyrir hjúkrunarrými fyrir aldraða. Þeim er hins vegar misdreift um landið. Skortur á hjúkrunarrýmum er fyrst og fremst á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík. Skv. lögum eiga sveitarfélög að leggja til 15% af byggingarkostnaði hjúkrunarheimila. Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík brugðust borgaryfirvöld við skorti á hjúkrunarrýmum m.a. með byggingu Droplaugarstaða með 65% kostnaðarhlutdeild á árinu 1981 og Seljahlíðar með 100% hlutdeild á árinu 1986. Ekkert slíkt framtak átti sér stað í tíð R-listans til að bregðast við sama vanda. Hins vegar liggja nú þegar fyrir áætlanir um byggingu 400 hjúkrunarrýma á næstu árum að mestu á höfuðborgarsvæðinu. Það er því ljóst að R-listinn sofnaði á verðinum í þau 12 ár sem hann sat við stjórnvölinn í Reykjavík. Því finnst mér ótrúlega djarft leikið af Samfylkingunni að slá upp auglýsingu um að flokkurinn vildi byggja 400 ný hjúkrunarrými á næstu 1 1/2 ári, þegar meginhluti vandans er á ábyrgð þeirra sjálfra! Hverra er „vanrækslusyndin“? Ég spyr! Höfundur er alþingismaður í Reykjavík.
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun