Láta af samstarfinu 19. apríl 2007 05:00
Tveir af stærstu sparisjóðum landsins, SPRON og BYR sparisjóður, hafa sagt skilið við hina sparisjóðina í sameiginlegum markaðsmálum undir heitinu „sparisjóðurinn". Samanlagt eru sparisjóðirnir tveir með um sextíu prósent af umsvifum sparisjóðanna. SPRON hefur reyndar unnið undir eigin merkjum markaðslega séð um nokkurra ára skeið og BYR sparisjóður ætlar frá og með næstu áramótum að fara eigin leiðir þótt ekki liggi fyrir hvort það verði alfarið út úr markaðsmálum eða eingöngu auglýsingaþættinum. Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða, segir að þetta sé að vissu leyti eðileg þróun þegar til verða jafn stórar einingar og Byr sem varð til með samruna SPH og SPV. Þeir sparisjóðir sem eftir verða ætla að þjappa sér saman að sögn Guðjóns. „Það er jafnöruggt að þeir sparisjóðir sem eru fyrir utan þessa tvo munu enn þá frekar herða samstarfið markaðslega. Auðvitað má gera ráð fyrir að minni peningar fari í þessi mál í heildina." Hann bendir á að sameiginlega ráði þeir sparisjóðir sem eftir verða nálægt tíu prósentum af einstaklingsviðskiptum í landinu þannig að mikill kraftur á að vera til staðar. Enn vinna sparisjóðirnir saman á mörgum sviðum. „Það er mikilvægt að átta sig á því að allir sparisjóðir í landinu eru aðilar að Sambandi sparisjóða og vinna náið saman að stórum og smáum hagsmunamálum, til dæmis aðlögun og innleiðingu Basel 2, sem er flókið bankaverkefni, og fræðslumálum sparisjóðanna," segir Guðjón.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira