Glötuð tækifæri Bjarni Jónsson skrifar 8. maí 2007 11:00 Mikils misskilnings gætir í málflutningi stjórnarandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrrstöðu í fjárfestingum í orkukræfum iðnaði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjárfesta, þar sem frá var horfið. Ekkert er fjær lagi en fjárfestar sitji með hendur í skauti og bíði þess, að valdhöfum í stjórnmálum á Íslandi þóknist að leyfa samninga um stóriðju. Fjárfestarnir munu freista gæfunnar annars staðar í heiminum í stað þess að bíða. Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær. Hið sama á við um fjárfestana. Þeir eiga á hættu að tapa markaðshlutdeild, ef þeir bíða í 5 ár; hvað þá lengur. Þess vegna yrði valdaskeið núverandi stjórnarandstöðu tímabil hinna glötuðu tækifæra. Þjóðarbúskapurinn íslenzki yrði af um 200 milljörðum króna á slíku stöðnunarskeiði, og er þá aðeins reiknað með því erlenda fé, sem mundi streyma um æðar íslenzks efnahagskerfis vegna fjárfestinga í virkjunum fyrir álver og í álverunum sjálfum. Miðað er við hóflegan uppbyggingarhraða, sem íslenzka efnahagskerfið ræður við án verðbólgu. Þetta jafngildir því, að stjórnmálamenn forræðishyggjunnar hafi með handstýringu sinni og úreltum vinnubrögðum haft eina milljón króna í tekjuaukningu af hverjum einasta launþega í landinu. Sameignarsinnarnir yrðu landsmönnum miklu dýrari en þetta, kæmust þeir til valda eftir kosningarnar 12. maí 2007. Þeir væru með sínu "stóriðjustoppi" búnir að stórskaða trúverðugleika íslenzkra yfirvalda í samskiptum við fjárfesta. Trúnaðarbrest tekur langan tíma að bæta fyrir. Þá er og líklegt, að sameignarsinnarnir í Samfylkingu og VG færu að föndra við skattakerfið með þeim afleiðingum, að allir bæru skarðan hlut frá borði; ríkissjóður, fjármagnseigendur og launþegar. Slíkt er ávísun á samdrátt efnahagslífsins, skuldasöfnun hins opinbera og gengissig. Hafa þá skapazt aðstæður fyrir verðbólgu, og í heild gætu landsmenn undir nýrri vinstri stjórn setið uppi með dýrtíð og kreppu (e."stagflation"). Sameignarsinnarnir á Íslandi skilja hvorki gangverk viðskiptalífsins né efnahagslífsins. Forystumenn vinstri manna eru hugmyndafræðilegar fornaldareðlur, sem engan veginn er þorandi að hleypa inn í Stjórnarráðið. Þeir boða stjórnunaraðgerðir, sem henta ekki frjálsu efnahagskerfi í heimsviðskiptum, en þóttu nothæfar, þegar stjórnmálamenn ginu yfir atvinnulífinu.Bjarni Jónsson, Verkfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Mikils misskilnings gætir í málflutningi stjórnarandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrrstöðu í fjárfestingum í orkukræfum iðnaði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjárfesta, þar sem frá var horfið. Ekkert er fjær lagi en fjárfestar sitji með hendur í skauti og bíði þess, að valdhöfum í stjórnmálum á Íslandi þóknist að leyfa samninga um stóriðju. Fjárfestarnir munu freista gæfunnar annars staðar í heiminum í stað þess að bíða. Sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær. Hið sama á við um fjárfestana. Þeir eiga á hættu að tapa markaðshlutdeild, ef þeir bíða í 5 ár; hvað þá lengur. Þess vegna yrði valdaskeið núverandi stjórnarandstöðu tímabil hinna glötuðu tækifæra. Þjóðarbúskapurinn íslenzki yrði af um 200 milljörðum króna á slíku stöðnunarskeiði, og er þá aðeins reiknað með því erlenda fé, sem mundi streyma um æðar íslenzks efnahagskerfis vegna fjárfestinga í virkjunum fyrir álver og í álverunum sjálfum. Miðað er við hóflegan uppbyggingarhraða, sem íslenzka efnahagskerfið ræður við án verðbólgu. Þetta jafngildir því, að stjórnmálamenn forræðishyggjunnar hafi með handstýringu sinni og úreltum vinnubrögðum haft eina milljón króna í tekjuaukningu af hverjum einasta launþega í landinu. Sameignarsinnarnir yrðu landsmönnum miklu dýrari en þetta, kæmust þeir til valda eftir kosningarnar 12. maí 2007. Þeir væru með sínu "stóriðjustoppi" búnir að stórskaða trúverðugleika íslenzkra yfirvalda í samskiptum við fjárfesta. Trúnaðarbrest tekur langan tíma að bæta fyrir. Þá er og líklegt, að sameignarsinnarnir í Samfylkingu og VG færu að föndra við skattakerfið með þeim afleiðingum, að allir bæru skarðan hlut frá borði; ríkissjóður, fjármagnseigendur og launþegar. Slíkt er ávísun á samdrátt efnahagslífsins, skuldasöfnun hins opinbera og gengissig. Hafa þá skapazt aðstæður fyrir verðbólgu, og í heild gætu landsmenn undir nýrri vinstri stjórn setið uppi með dýrtíð og kreppu (e."stagflation"). Sameignarsinnarnir á Íslandi skilja hvorki gangverk viðskiptalífsins né efnahagslífsins. Forystumenn vinstri manna eru hugmyndafræðilegar fornaldareðlur, sem engan veginn er þorandi að hleypa inn í Stjórnarráðið. Þeir boða stjórnunaraðgerðir, sem henta ekki frjálsu efnahagskerfi í heimsviðskiptum, en þóttu nothæfar, þegar stjórnmálamenn ginu yfir atvinnulífinu.Bjarni Jónsson, Verkfræðingur
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar