Horft framhjá lækkandi vaxtamun í þjóðfélagsumræðunni 9. mars 2007 05:15
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, sagði á aðalfundi sparisjóðsins sem haldinn var í gær, að vaxtamunur sparisjóðsins hefði verið 1,6 prósent á síðasta ári samanborið við 2,4 prósent árið 2005. Vaxtamunur hafi verið enn meiri þegar litið er lengra aftur í tímann. „Þetta eru staðreyndir málsins. Vaxtamunur á Íslandi hefur farið lækkandi undanfarin ár og það er með ólíkindum að öðru skuli blákalt haldið fram í þjóðfélagsumræðunni.“ Þá minntist Guðmundur á að rekstrartekjur, til dæmis af hlutabréfum, hefðu vaxið hratt hjá SPRON og skipti nú sköpum hvað afkomu sjóðsins snerti. Rekstrartekjur SPRON af hlutabréfum námu 11,8 milljörðum króna í fyrra en hagnaður eftir skatta rúmum níu milljörðum króna. „Í þessu sambandi er nauðsynlegt að hafa í huga að fjárfestingar okkar í hlutabréfum nema um 30 milljörðum í lok síðasta árs og að þær skila ekki vaxtatekjum. Ef við seldum þessi hlutabréf og settum andvirði þeirra inn á reikning í Seðlabanka fengjum við liðlega fjóra milljarða í vaxtatekjur á ári miðað við núverandi vaxtastig.“ Í ræðu Hildar Petersen, stjórnarformanns SPRON, kom fram að áhugi fjárfesta á stofnfjárbréfum hefur stóraukist. Stofnfjáreigendum fjölgaði um 45 prósent í fyrra og voru 1.191 í árslok. „Gengi stofnfjárbréfa hefur líka verið fjárfestum mjög hagfellt því það vill svo til að það hefur endurspeglað arðsemi SPRON og hækkaði um 57 prósent á síðasta ári, sem er langt umfram 16 prósenta hækkun Úrvalsvísitölunnar í Kauphöllinni. Það gagnkvæma traust sem ríkt hefur milli stofnfjáreigenda og stjórnenda SPRON hefur verið lykillinn að þeim ævintýralega vexti og arðsemi sem síðastliðin tvö ár hafa skilað hjá SPRON,“ sagði Hildur.
Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Sjá meira