Verðmæti sjö félaga yfir 200 milljörðum 16. febrúar 2007 06:15
Þegar markaðsvirði Straums-Burðaráss fór yfir 200 milljarða króna í vikunni eru sjö Kauphallarfélög í fyrsta skipti metin á 200 milljarða króna eða meira. Auk Straums eru þetta Kaupþing, Glitnir, Landsbankinn, Exista, FL Group og Actavis. Aðeins Actavis flokkast utan þess að vera skilgreint sem fjármála- eða fjárfestingafélag. Þá hefur það gerst í fyrsta skipti að fjögur fyrirtæki eru komin yfir 300 milljarða króna að markaðsvirði eftir að Exista fór yfir 300 milljarða múrinn í vikunni. Frá áramótum hefur Úrvalsvísitalan hækkað um fjórtán prósent, en það eru fyrst og fremst fjármálafyrirtæki og fjárfestingafélög sem hafa dregið vagninn. Exista, FL Group og Landsbankinn hafa öll hækkað um meira en fimmtung í virði það sem af er ári. Hækkun á gengi stærstu félaganna hefur því valdið mikilli verðmætaaukningu stærstu fyrirtækjanna. Langverðmætasta fyrirtækið í Kauphöll Íslands er Kaupþing sem metið var á 729 milljarða í gær. Bankinn er nærri tvöfalt verðmætari en næsta félög í röðinni sem er Glitnir, metinn á 379 milljarða króna. Til marks um þann vöxt sem hefur orðið á íslensku stórfyrirtækjunum á skömmum tíma þá var Pharmaco, forveri Actavis, verðmætasta fyrirtækið í Kauphöllinni fyrir tæpum fjórum árum. Markaðsvirðið var þá rétt undir fimmtíu milljörðum króna. Kaupþing varð fyrsta fyrirtækið til að rjúfa 200 milljarða múrinn en það gerðist eftir að bankinn eignaðist FIH í Danmörku um mitt ár 2004. -
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Rúmur milljarður til Viðskiptaráðs og SA á fimm árum Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira