Ramos reynir við Grýlu á morgun 21. desember 2007 12:15 Ramos er í góðri aðstöðu til að vinna hjörtu stuðningsmanna Tottenham á morgun NordicPhotos/GettyImages
Juande Ramos hefur aðeins tapað einum leik síðan hann tók við Tottenham en á morgun reynir hann að gera nokkuð sem forvera hans Martin Jol tókst aldrei að gera í sinni stjórnartíð - að vinna sigur í grannaslagnum við Arsenal. Tottenham hefur ekki unnið Arsenal í níu ár og þó viðureignir liðanna hafi oft verið mjög fjörugar á þessum tíma, hafa lærisveinar Arsene Wenger oftar en ekki haft betur hvort sem um hefur verið að ræða aðallið eða unglingaliðið í deildarbikarkeppninni. Ramos á ekki síður erfitt verkefni fyrir höndum á Emirates þegar haft er í huga að vörn Tottenham, sem hefur verið afleit þangað til í síðustu leikjum, verður ansi fámenn á morgun vegna mikilla meiðsla. Ramos er þó hvergi banginn eftir góða útisigra gegn Manchester City og Portsmouth að undanförnu. "Það er mikill munur á þessum liðum í deildinni, en við erum ekki alveg í jafn vondum málum og við vorum áður. Við vitum að það er langt síðan við höfum unnið Arsenal, en við munum reyna okkar besta. Arsenal spilar frábæra knattspyrnu og er á toppnum, en við erum líka að spila betur upp á síðkastið. Ég held að þetta sé ekki beint sálfræðilegt, ég held að staðreyndin sé einfaldlega sú að Arsenal er með frábært lið og stóran hóp og það sé ástæðan fyrir því að okkur hefur gengið illa með þá. Það verður hinsvegar liðið sem leikur best á laugardaginn sem hefur betur í það skiptið," sagði Spánverjinn í samtali við Daily Mirror.
Enski boltinn Mest lesið Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Albert lenti í slysi með sleikjó og braut framtönn Íslenski boltinn Sölvi Geir: Fengum hann til félagsins út af þessu Íslenski boltinn Sundæfingar Andreu skiluðu silfurverðlaunum á breska meistaramótinu Sport Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Handbolti FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn Breiðablik - Þór Ak. 4-0 | Sóknarleikur Blika vaknaði með látum Íslenski boltinn Rúnar og Logi áfram í Njarðvík næstu tvö árin Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-88| Njarðvíkingar berja frá sér Körfubolti KR - FH 4-2 | Frábærir KR-ingar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Shearer segir að leikmenn Newcastle hafi fleygt Howe undir rútuna Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Sjá meira