Glitnir hagnast um 25 milljarða 30. október 2007 11:53 MYND/GVA
Hagnaður Glitnis á fyrstu níu mánuðum ársins nam 25, 2 milljörðum króna samkvæmt uppgjöri sem birt var í dag. Það er um þremur milljörðum króna minna en á sama tíma í fyrra. Fram kemur í uppgjörinu að hagnaður bankans á þriðja ársfjórðungi hafi numið rúmum 8,6 milljörðum króna sem er svipað og greiningardeildir hinna bankanna höfðu spáð. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að hreinar rekstrartekjur hafi aukist um 56 prósent milli ára og þar segir einnig að á fyrstu níu mánuðum ársins myndaðist 46 prósent af hagnaði bankans fyrir skatta af starfsemi utan Íslands. Heildareignir bankans voru 2.766 milljarðar og höfðu aukist um rúma 500 milljarða frá ársbyrjun.„Á þriðja ársfjórðungi sjáum við fjölmörg jákvæð merki í rekstrinum og ég er afar ánægður með að tekjur bankans hafa aldrei verið meiri en á tímabilinu" segir Lárus Welding, forstjóri Glitnis. „Við sjáum áframhaldandi vöxt þóknanatekna, þrátt fyrir óróa á mörkuðum. Mikil viðskipti voru í Fjárfestingabankastarfseminni, sem skila 2,2 milljörðum í hagnað fyrir skatta og í Markaðsviðskiptum, sem skila 2,0 milljörðum í hagnað. Heildarútlán jukust um 145 milljarða á seinni hluta fjórðungsins eftir takmarkaðan lánavöxt fyrstu átta mánuði ársins. Þessi hækkun ætti að skila auknum vaxtatekjum á komandi ársfjórðungum. Vaxtamunurinn er undir væntingum en við reiknum með að sjá jákvæðan viðsnúning þar á næstu mánuðum," segir Lárus enn fremur í tilkynningu.Bent er á að starfsfólki bankans hafi fjölgað um 600 á seinustu 12 mánuðum, þar af bættust 300 starfsmenn í hópinn þegar finnska fjármálafyrirtækið FIM var keypt fyrr á árinu.
Mest lesið Ríkisstjórn kynnir tíu ára vaxtarplan á morgun Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórn kynnir tíu ára vaxtarplan á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Sjá meira