Hvað ertu að gera? 27. ágúst 2007 09:30 Milljónir manna skrá lítil skilaboð um gjörðir sínar inn á Twitter.com á hverri sekúndu. Þaðan fara skilaboðin í farsíma vina þeirra sem vilja fylgjast með þeim.
Hvað ertu að gera? spyrja menn gjarnan þegar þeir hringjast á. Vefsíðan Twitter bætir um betur og sér til þess að engin þörf sé á símtalinu því svarið liggur á síðunni. Ég stend í röðinni á Te & Kaffi og bíð eftir latte. Er föst í umferðinni á Miklubraut. Síðasta vinnudeginum er alveg að ljúka - júhú! og öðrum setningum í þessum dúr er dælt inn á hverri sekúndu á vefsíðuna Twitter.com. Þar skráir fólk sig inn og gefst tækifæri á að senda inn lítil skilaboð á síðuna í gegnum vefinn eða farsímann sinn til að láta vita hvað það eru að gera hverju sinni. Hver notandi getur svo átt sína fylgismenn sem fá skilaboð í símann sinn þegar ný skilaboð berast frá þessum tiltekna aðila. Engum er skylt að svara skilaboðunum og eru þau ekki mikið lengri en venjuleg SMSskilaboð. Mörgum gæti þótt þetta alger tímasóun og enn ein viðbótin við allt ruslið sem safnast upp á netinu. Svo virðist hins vegar sem netnotendur taki þessari síðu fagnandi og á einni bloggsíðu segir Twitter-notandi þetta bestu leiðina til að koma skilaboðum áleiðis manna á milli og mun einfaldara og þægilegra í notkun en tölvu- póst. Á annari bloggsíðu talar einn Twitter-notandi um þetta sem þægilega leið til að fá innsýn í líf vina sinna. Næst þegar hann hitti þá hafi hann jafnvel um eitthvað skemmtilegt að tala því hann viti hvað þeir voru að gera alla vikuna og honum finnist hann átta sig betur á þeirra daglega lífi og áhugamálum. Hver svo sem skoðun manna er á vefsíðunni Twitter.com er hún einn einn vitnisburðurinn um að fólk er viljugt að láta í té persónulegar upplýsingar um sig, óháð því hver skoðar þær. Hver sem er getur skráð sig sem notanda á twitter.com sér að kostnaðarlausu og engu skiptir hvar hann er í heiminum.
Tækni Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira