Hreyfing opnar heilsulind í Glæsibæ með Bláa lóninu 21. ágúst 2007 11:34
Heilsuræktarstöðin Hreyfing og Blue Lagoon Spa hyggjast opna sameiginlega heilsulind í nýju húsnæði við Glæsibæ í Reykjavík. Eftir því sem segir í tilkynningu frá félögunum er um að ræða fyrstu heilsulind sinnar tegundar í heiminum en ætlunin er að opna fleiri slíkar heilsulindir í útlöndum á næstu árum. Hin nýja heilsulind tekur til starfa í lok árs í Glæsibæ en þar verður boðið upp á spa-meðferðir með þeim virku efnum sem finna má í Bláa lóninu. Þau hafa hingað til aðeins verið í boði í Bláa lóninu í Grindavík. Í heilsulindinni verður einnig veitingaaðstaða og þá verða heitir pottar á skjólgóðu útisvæði. Fjöldi viðskiptavina verður takmarkaður í Glæsibæ en alls verður heilsuræktarstöðin í 3.300 fermetra húsnæði sem er tvöfalt stærra en núverandi húsnæði Hreyfingar í Faxafeni. „Það er afar spennandi verkefni að þróa nýja heilsulind frá grunni, en þar hefur áratuga þekking og reynsla okkar af heilsurækt nýst vel. Með því að sameina Hreyfingu og Blue Lagoon Spa undir einu þaki skapast fjölmörg tækifæri til fjölbreyttrar þjónustu í fallegu umhverfi þar sem fólk getur ræktað bæði líkama og sál," segir Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar í tilkynningu til fjölmiðla. Heilsuræktarstöðin Hreyfing var stofnuð 1998 og er dótturfélag Bláa Lónsins hf.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira