Byggðarstofnun skilar hagnaði 20. ágúst 2007 10:36
Byggðarstofnun skilaði ríflega 4 milljóna króna hagnaði á fyrri hluta ársins 2007. Hreinar vaxtatekjur sofnunarinnar námu rétt rúmlega 86 milljónum króna miðað við neikvæðar vaxtatekjur upp á 49 milljónir á sama tímabili 2006. Rekstrartekjur námu 166 milljónum króna og rekstrargjöld að meðtölum framlögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár nam 162 milljónum króna. Framlög í afskriftarreikning útlána og niðurfært hlutafé voru neikvæðar um 30 milljónir króna, að því er fram kemur í upplýsingum frá Kauphöll Íslands. Eigið fé Byggðastofnunar nam rúmum einum milljarði króna eða 9,26% af niðurstöðu efnahagsreiknings. Eiginfjárhlutfall stofnunarinnar er 9,03%. Samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki skal eigið fé lánastofnunar á hverjum tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svarar 8% af áhættugrunni. Í byrjun ágúst tilkynnti iðnaðarráðherra að ríkissjóður muni yfirtaka 1.200 milljónir króna af skuldum stofnunarinnar. Gert er ráð fyrir að hún fái jafnframt 200 milljónir króna á næstu tveimur árum í samkeppnissjóð sem verði notaður til eflingar nýsköpunar á landsbyggðinni. Þetta er gert til að Byggðastofnun geti stutt við fyrirtæki í sjávarútvegi sem munu eiga í vandræðum vegna 30% niðurskurðar í þorskveiðum. Áætlað er að afléttingin skuldanna verði afgreidd frá Alþingi í fjáraukalögum í haust og muni koma til framkvæmda í lok ársins. Mun þessi aðgerð styrkja efnahag stofnunina til muna og tvöfalda eigið fé hennar.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira