Hagræðing fyrir viðskiptavini 13. ágúst 2007 12:00 „Áhugi viðskiptavina á að stýra sjálfir hvenær dags þeir kjósa að horfa á uppáhalds sjónvarpsefni sitt mun líklega leiða okkur á þá braut að mestalltdagskrárefni framtíðar verða aðgengileg í gegnum Sjónvarp Símans,“ segir Linda. MYND/Rósa
Síminn og 365 miðlar hafa gert með sér samning um frekari dreifingu sjónvarpsefnis. Á síðasta ári undirrituðu forsvarsmenn Símans og 365 miðla samning um aðgang 365 miðla að Sjónvarpi Símans. Nýlega gerðu þeir með sér annan samning, sem hefur töluverða hagræðingu í för með sér fyrir viðskiptavini Símans. „Viðaukinn felur í sér að viðskiptavinirnir geta séð enska boltann og fleira íþróttaefni á Sýn 2, án þess að skipta um afruglara eða breyta móttöku sjónvarpsefnis," útskýrir Linda Björk Waage, forstöðumaður kynningarmála Símans. „Í samkomulaginu felst líka að viðskiptavinir Símans sem hafa aðgang að ADSL+2 dreifileið geta séð Sýn 2 í háskerpu eða HD, um leið og tæknilegar forsendur leyfa." Að sögn Lindu þýðir þetta að viðskiptavinir Símans geta fengið alla áskrift bæði frá 365 miðlum og Skjánum á myndlykli Símans. Allra hörðustu fótboltaáhugamenn og -konur ættu því að geta séð hetjurnar sínar í ensku deildinni ásamt því að geta fylgst með gangi mála í fjórum öðrum samtímaleikjum. Þá hefur fótbolti í háskerpu verið töluvert í umræðunni og segir Linda Símann hafa brugðist við því með því að uppfæra sinn búnað. „Stefnt er að því að boltinn verði í boði í háskerpu á haustmánuðum. Þá hafa báðir aðilar undirritað viljayfirlýsingu um að fréttir Stöðvar 2, Ísland í dag og valdir þættir verði aðgengilegir í Sjónvarpi Símans eftir að þeir hafa verið sýndir. Opið efni frá 365 miðlum yrði aðgengilegt öllum, en efni úr læstri dagskrá yrði einungis í boði fyrir áskrifendur efnisins. Linda er ánægð með samstarfið og telur að það muni eflast í framtíðinni. „Það er allra hagur að dreifing og áskriftarþjónusta verði sem einföldust og aðgengilegust fyrir viðskiptavini Símans. Fólk vill einfaldleika, einn myndlykil sem veitir möguleikann á að kaupa allt það sjónvarpsefni sem það hefur áhuga á."
Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Sjá meira