Öfundsverð staða en skortur á aðhaldi 11. júní 2007 15:30
Sendinefnd á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur að efnahagshorfur á Íslandi séu enn öfundsverðar. Stjórnvöld þurfa hins vegar að beita meira aðhaldi í fjármálum ríkisins og endurskoða þarf Íbúðalánasjóð. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kynnti sér íslensk efnahagsmál á fundum með fulltrúum stjórnvalda og atvinnulífsins dagana 31. maí - 11. júní 2007. Á lokafundi nefndarinnar lagði formaður hennar fram álit sendinefndarinnar sem greinir frá helstu niðurstöðum af viðræðum hennar og athugunum hér á landi. „Til lengri tíma litið eru efnahagshorfur á Íslandi enn öfundsverðar," segir í áliti nefndarmanna sem birt var í dag. Hins vegar er bent á að á næstunni þurfi stjórnvöld að „beita viðeigandi aðhaldi til þess að draga úr innlendri eftirspurn. Að auki þarf að efla áhrifamátt ríkisfjármála og peningamála til þess að ná þjóðhagslegum stöðugleika. Slíkar aðgerðir munu auka getu hagkerfisins til þess að takast á við óstöðugleika sem rekja mætti til hnattvæðingarinnar en þær auðvelda því jafnframt að nýta þau góðu tækifæri sem bjóðast." Þá er sagt að endurskoða þurfi starfssemi Íbúðalánasjóðs og fyrsta skrefið ætti að vera að „lækka án tafar hámarkslán og lánshlutföll hans. Í framhaldinu þarf ríkisstjórnin að eyða fyrir fullt og allt þeirri bjögun á innlendum fjármálamarkaði sem stafar af tilvist Íbúðalánasjóðs í eigu hins opinbera. Um leið má taka upp sértækar aðgerðir sem tryggja aðgang að fasteignafjármögnun í öllum landshlutum." Sendinefndin segir að myndun nýrrar ríkisstjórnar á dögunum „veiti upplagt tækifæri til þess að taka þær erfiðu ákvarðanir sem nauðsynlegar eru til þess að styrkja efnahagsstöðugleika á Íslandi. Því fyrr sem þessar ákvarðanir eru teknar, því fyrr verður jafnvægi endurheimt í íslenska hagkerfinu."
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira