Stefnt að tvöföldun Refresco á einu ári 23. maí 2007 06:00
Eftir að Refresco Holding, annar stærsti drykkjavöruframleiðandi Evrópu, festi kaup á Nuits Saint-Georges (NSG) í Frakklandi á dögunum hefur fyrirtækið tvöfaldast á einu ári. En þar með er ekki sagan öll: „Við ætlum að halda áfram á þessari braut og horfum til tvöföldunar á næstu tólf mánuðum. Ég myndi telja það næsta víst að það takist,“ segir Hannes Smárason, forstjóri FL. Félagið leiddi fjárfestahóp er stóð að yfirtökunni á Refresco í apríl í fyrra. Þetta er fjórða yfirtaka hollenska fyrirtækisins á aðeins fjórum mánuðum en áður hafði það eignast Kentpol í Póllandi, Histogram í Bretlandi og Sun Beverages Company (SBC) í Frakklandi og Niðurlöndum. Að sögn Hannesar fer heildarvelta Refresco í 1,1 milljarð evra, um 93 milljarða króna, eftir kaupin á NSG en ef áform stjórnenda um áframhaldandi vöxt ganga eftir verður veltan komin yfir 180 milljarða. Reiknað er með að rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) verði um 110 milljónir evra á næstu tólf mánuðum, sem jafngilda 9,3 milljörðum króna. Stjórnendur FL Group hafa bent á að tvennt kunni að hafa aukið verðmæti Refresco-hlutarins sem er bókfærður á upphaflegu kaupvirði, um fimm milljarðar króna. Þegar kaupin fóru fram greiddi fjárfestahópurinn um sjöfalda EBITDA fyrir Refresco en nú hefur rekstrarhagnaður tvöfaldast. Í öðru lagi hafa EBITDA-margfaldarar á drykkjarvörugeiranum farið hækkandi, úr sjö í níu að jafnaði. Hannes telur að Refresco sé ekkert ósvipað fyrirtæki og Bakkavör. Stærstu viðskiptavinirnir eru sterkar smásölukeðjur á borð við Aldi, Lidl, Tesco og Carrefour. Nú rekur Refresco fimmtán verksmiðjur í átta löndum, þar af tvær í Frakklandi.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira