Nýjar langfleygar breiðþotur bætast í flota Icelandair Cargo 23. maí 2007 18:48 Airbus 330-200 fraktvél í litum Icelandair Cargo.
Í dag undirrituðu Icelandair Cargo og Icelease, dótturfyrirtæki Icelandair Group, samning við Avion Aircraft Trading um leigu og kaup á samtals fjórum nýjum Airbus A330-200 fraktflugvélum. Í tilkynningu frá Icelandair Group leigir Icelandair Cargo tvær vélanna beint frá AAT en Icelease kaupir tvær og leigir áfram til Icelandair Cargo. Tvær flugvélar verða afhentar vorið 2010 og hinar tvær ári seinna. Áætlaðar árlegar tekjur af rekstri þessara fjögurra þota eru um 15-18 milljarðar króna. „Með þessum fjórum Airbus þotum er Icelandair Cargo að hrinda í framkvæmd langtímastefnu um rekstur hagkvæmra flugvélategunda, áætlunarflug til fjarlægra markaða í Asíu og Ameríku, margföldun á stærð félagsins og stóraukin umsvif á Keflavíkurflugvelli," segir í tilkynningunni. A330-200 fraktvélin mun fara í framleiðslu síðla árs 2009 og verður Icelandair Cargo einn fyrsti notandinn í heiminum. Hún hefur 50% meira rými en Boeing 757-200 vélarnar sem fyrirtækið notar nú, ber 69 tonn, eða tvöfalt meira en B757, og hefur mun meiri flugdrægni. Hreyflar eru hljóðlátari og menga minna en hreyflar almennt auk þess sem eldsneytiseyðsla er minni. Skráð listaverð þessara flugvéla hjá Airbus er um 130 milljónir bandaríkjadala. Forsvarsmenn Icelandair Group segja að í dag komi um 80% af veltu Icelandair Cargo frá starfsemi sem tengist Íslandi en um 20% af öðrum mörkuðum. Stefnt er að því að þessi hlutföll snúist við á næstu árum. "Við horfum einkum til Kína, Indlands og Persaflóasvæðisins og tengingu um safnflugvöll í Evrópu við Ísland og Norður Ameríku", segir Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo. "Keflavíkurflugvöllur verður einnig safnvöllur og tengjast gegnum hann borgir í Bandaríkjunum og Kanada við lykilmarkaði í Evrópu. Við reiknum með að þrefalda vöruflæði um flugvöllinn, þrefalda tekjur frá því sem er í dag sem og að þrefalda afkomu með þessum samningum." "Aðeins heilbrigð og arðbær fyrirtæki geta fjárfest í nýjustu og hagkvæmustu flugvélunum og þessi viðskipti sýna þann slagkraft og skýru framtíðarsýn sem býr í fyrirtækjum Icelandair Group", segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group. "Icelandair Cargo hefur vaxið hratt með arðbærum hætti undanfarin ár og stefnir nú á enn meiri vöxt á nýjum mörkuðum. Icelease er með leigusamninga við flugfélög um allan heim og er sívaxandi í flugvélaviðskiptum. Icelandair Cargo rekur nú fimm Boeing 757-200 fraktvélar og stefnir að því að fjölga þeim um eina til tvær fram að afhendingu A330. Eftir það verða þessar tvær tegundir reknar samhliða um óákveðin tíma. Félagið hefur vaxið um 20% á ári undanfarin ár og stefnir á svipaðan vöxt næstu árin. Flugfrakt er vaxtargrein, sem reiknað er með að vaxi næstu 20 ár um 6% árlega. Vaxtaráform byggjast á því að örva innri vöxt með auknu flugframboði inn á nýja markaði, og samstarfi við önnur flugfélög.
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira