Netárásir enn algengar 7. maí 2007 00:15 Stolnar tölvur eru lyklar tölvuþrjóta að netárásum. Æ algengara er að fyrirtæki beini árásum gegn samkeppnisaðilum.
Þrátt fyrir að eðli netárása hafi breyst hefur þeim síst af öllu fækkað. Á vef breska ríkissjónvarpsins BBC eru netárásir gerðar að umtalsefni. Netárásir eru þegar tölvuþrjótar koma sér upp svokölluðum bot-tölvum, sem venjulega eru stolnar, og hóta gegnum þær að yfirfylla tölvukerfi fyrirtækja af draslpósti og gagnslausum upplýsingum þannig að þau hrynji. Eina leiðin fyrir fyrirtækin að forðast árásina er að borga þrjótunum þá upphæð sem farið er fram á. Hrun getur verið dýrkeypt og því er ekki óalgengt að gengið sé að kröfum tölvuþrjóta. Þeim er borgað og svo er beðið og vonað að ekkert verði af árásinni. Slíkum árásum hefur fækkað þar sem þær eru erfiðar og áhættusamar en tölvuþrjótarnir hafa fundið nýja leið til að nýta hæfileika sína. Nú virðist það færast í vöxt að fyrirtæki fái tölvuþrjóta til að framkvæma árásir á samkeppnisaðila sína. Liggi vefsíða annarra niðri gefur það óneitanlega forskot í hörðum viðskiptaheimi. Fátt virðist geta komið í veg fyrir þessar árásir. Eftir því sem öryggiskerfi verða öflugri, þeim mun duglegri verða þrjótarnir að finna leiðir til að brjóta þau á bak aftur.
Tækni Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent