Viðskipti erlent

TopShop hagnast á Kate Moss

Sala hefur gengið vonum framar á nýjustu fatalínu Kate Moss fyrir verslanakeðjuna TopShop. Moss, sem hér er með unnusta sínum, vandræðagemlingnum Pete Doherty, hefur löngum verið þekkt fyrir góðan en frjálslegan klæðaburð.
Sala hefur gengið vonum framar á nýjustu fatalínu Kate Moss fyrir verslanakeðjuna TopShop. Moss, sem hér er með unnusta sínum, vandræðagemlingnum Pete Doherty, hefur löngum verið þekkt fyrir góðan en frjálslegan klæðaburð.

Nýjasta fatalínan sem TopShop býður upp á hefur slegið í gegn og selst sums staðar upp. Gert er ráð fyrir að salan eigi enn eftir að færast í aukana. Hönnuður fatalínunnar er, eins og þekkt er orðið, engin önnur en ofurfyrirsætan Kate Moss.

Veltan í fyrstu vikunni sem fatalínan var í sölu í verslunum TopShop í Lundúnum, í enda apríl, nam þremur milljónum punda, jafnvirði tæpra 375 milljóna íslenskra króna. Þetta er langt umfram væntingar, að því er stjórnendur hjá TopShop sögðu í samtali við breska dagblaðið Telegraph á föstudag þegar fyrstu sölutölur lágu fyrir.

Þetta mun vera jafnmikið og ofurfyrirsætan fékk greitt frá TopShop til að hanna fatalínuna.

Gert er ráð fyrir að enn meiri tekjur eigi eftir að koma í kassann því fatalínan sló í gegn í New York þegar sala á henni hófst þar í borg fyrir hálfum mánuði. Þá munu föt undir merkjum Moss seljast vel hjá TopShop í Stokkhólmi auk þess sem sala á þeim hófst hjá TopShop í Smáralind á föstudag. Og von er á enn meiri glaðningi úr faðmi Kate Moss því hún hefur samið við TopShop um að gera fjórar fatalínur til viðbótar á næstu á tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×