Sala Novators á hlut sínum í BTC á lokastigi 29. apríl 2007 12:31 MYND/TH
Viðræður Novators, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, um sölu á 65 prósent hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC eru nú á lokastigi. Að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar, upplýsingafulltrúa Novators, á félagið í viðræðum við tvo mögulega kaupendur en ekkert hafi verið ákveðið. Hann segir fréttir þessa efnis að búið sé að ganga frá sölusamningi rangar og ennfremur sé það rangt að Novator sé að draga sig út úr fjarskiptarekstri í austur Evrópu. „Við höfum verið í þessum sölufasa all lengi en það er ekki búið að ganga frá neinu," sagði Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Novators, í samtali við Vísi. „Viðræður um sölu á 65 prósent hlut í BTC eru á lokastigi og við erum að tala við tvo aðila. Þetta skýrist væntanlega eftir viku." Fram kemur á fréttavef bandaríska blaðsins Forbes að Novator hafi selt 10,8 prósent hlut sinn í gríska fjarskiptafélaginu Forthnet. Þá hefur blaðið eftir ónefndum heimildarmanni að Novator sé að draga sig út úr fjarskiptarekstri í austur Evrópu. Í frétt Reuters er því ennfremur haldið fram að Novator hafi þegar náð samkomulagi við bandarískt fjárfestingarfélag um sölu á 65 prósent hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC. Ásgeir segir það alrangt að Novator sé á leið út úr fjarskiptarekstri í austur Evrópu. Hann bendir á Novator eigi enn um 20 prósent hlut í Forthnet eftir söluna. Þá stefni fyritækið að áframhaldandi uppbyggingu í Póllandi. Hins vegar sé ljóst að Novator sé að fara frá Búlgaríu. Novator á nú hlut í sex fjarskiptafélögum á meginlandi Evrópu þar af fimm í austurhluta álfunnar. Fyrirtækin Netia og P4 í Póllandi, BTC í Búlgaríu og Forthnet í Grikklandi. Þá á félagið ennfremur lítinn hlut í tyrknesku símafyrirtæki og leiðandi hlut í finnska fjarskiptafyrirtækinu Elisa. Áætlað er að verðmæti hluta Novator í Forthnet hafi fjórfaldast á þeim tveimur árum sem hafa liðið frá því Novator keypti sig inn í félagið. Þá er ennfremur áætlað í frétt Reuters að söluverðmæti á hlut Novators í BTC nemi um 110 milljörðum íslenskra króna.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira