Straumur Burðarás hagnast um 6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 26. apríl 2007 08:00 Frá hluthafafundi Straums Burðaráss í júlí í fyrra. MYND/HH
Hagnaður fjárfestingarbankans Straums Burðaráss eftir skatta nam um 6 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu bankans. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður bankans um 19 milljörðum. Bankinn birti nú í fyrsta skipti afkomutilkynningu sína í evrum. Fram kemur í tilkynningu bankans að það sem helst skýri þennan mikla mun á hagnaði milli ára sé að í fyrra hafi bankinn selt 21,05 prósent hlut sinn í Glitni, áður Íslandsbanka. Hreinar tekjur bankans á fyrsta ársfjórðungi námu um átta milljörðum íslenskra króna og þar af hreinar vaxta- og þóknunartekjur 3,6 milljörðum. Rekstrarkostnaður á fyrstu þremur mánuðum ársins nam 1,3 milljarði króna en á sama tímabili í fyrra var hann rétt rúmur milljarður. Heildareignir bankans í lok síðasta mánaðar voru um 45 milljarðar og jukust um átta milljarða milli tímabila. Í tilkynningunni er ennfremur haft eftir Friðriki Jóhannssyni, forstjóra bankans, að færslan yfir í evrur hafi gengið að óskum. Stefnt sé að því að auka þóknunartekjur bankans og að fyrstu þrír mánuðir þessa árs í séu samræmi við stefnu bankans og markmið. „Við ætlum okkur að vaxa af krafti á þessu ári; á Norðurlöndum, Bretlandseyjum og þar sem vænleg tækifæri bjóðast í Evrópu."
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira