Viðskipti innlent

Sir Tom Hunter stærstur í Jötni

Sir Tom Hunter
Sir Tom Hunter

Jötunn Holding, sem er eignarhaldsfélag að stærstum hluta í eigu Baugs Group og Sir Toms Hunter, ríkasta manns Skotlands, eignaðist 4,5 prósent hlutafjár í Glitni í síðustu viku.

Hunter tekur um helming hlutafjár í Jötni Holding, samkvæmt heimildum Markaðarins, á móti þrjátíu prósenta hlut Baugs. Óþekktur þriðji aðili kemur einnig að félaginu.

Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum eignaðist Hunter um tveggja prósenta hlut í Glitni sem var settur inn í Jötni ásamt bréfum Baugs í Glitni og viðbótarhlut sem keyptur var á markaði. Eignarhlutur Jötuns er metinn á 17,7 milljarða króna miðað við gengi Glitnis í vikubyrjun.

Í breska blaðinu Times um helgina kom fram að Hunter ætti einnig tæplega þriggja prósenta hlut í FL Group sem hann eignaðist í nóvember árið 2005 þegar FL jók eigið fé um 44 milljarða króna í hlutafjárútboði. Að sögn Times nemur óinnleystur hagnaður Skotans af fjárfestingunni í FL þrjátíu milljónum punda, um 3,9 milljörðum króna.

Það er varla hægt að segja að Skotinn hafi setið auðum höndum í síðustu viku því ásamt því að hafa komið að stofnun Jötuns tók hann þátt í yfirtöku á byggingarfélaginu Crest Nicholson í samvinnu við bankann HBOS. Fjárfestahópurinn, sem kallast Castle Bidco, greiðir um 93 milljarða króna fyrir félagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×