Sautján útskrifast úr skóla SÞ 14. mars 2007 06:00 Sautján nemendur frá þrettán þróunarlöndum luku námi við Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. MYND/Vilhelm
Í síðustu viku útskrifuðust sautján nemendur úr Sjávarútvegs-skóla Sameinuðu þjóðanna sem starfræktur er hér á landi. Nemendurnir í ár voru frá Kenía, Tansaníu, Srí Lanka, Úganda, Grænhöfðaeyjum, Íran, Kína, Malasíu, Kúbu, Vanúatú, Tonga, Namibíu og Máritíus. Allir hafa þeir dvalið hér frá því í september en snúa nú hver af öðrum aftur til starfa í heimalöndum sínum. Nordina Din frá Malasíu. Nordina var valin úr hópi malasískra umsækjenda til að stunda nám við Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið sem hún vann að snerist um að greina rekstur svæðasamtaka veiðimanna í Malasíu. Hún starfar sem endurskoðandi hjá Hafrannsóknastofnun Malasíu. Þar mun hún halda áfram að vinna að verkefninu í því miði að bæta arðsemi samtaka veiðimanna. Þeir nemendur sem koma til náms í Sjávarútvegsskólanum eru iðulega fagfólk með reynslu af störfum við rannsóknir, stjórnsýslu og rekstur á sviði veiða og sjávarútvegs. Í náminu felast inngangsnámskeið, sérfræðinámskeið og hagnýtt lokaverkefni. Mikil áhersla er lögð á að þegar náminu lýkur snúi nemendur aftur til heimalandsins með þekkingu sem nýtist þeim sjálfum, fyrirtækjunum sem þeir starfa hjá og þjóðfélaginu í heild. Xiaojie Nie frá Kína Hluti af námi Xiaojie Nie hjá Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna var að gera markaðsáætlun fyrir Icelandic Group í Kína. Hún hefur unnið að því að greina kínverska markaðinn fyrir félagið sem hefur hug á að hefja smásölu á Kínamarkaði. Meðal þess sem hún hefur ráðlagt Icelandic Group er að markaðssetja reyktan lax í Kína. Kínverjar hafi smekk fyrir feitum og bragðmiklum fiski. Sjávarútvegsskóli SÞ hóf starfsemi í upphafi ársins 1998. Hann er starfræktur af Hafrannsókna-stofnun í samstarfi við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (MATÍS), Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Alls hafa nú 145 nemendur frá 25 löndum lokið námi við skólann.
Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Sjá meira