Hluthafar Giftar verða fleiri en eigendur bankanna 20. júní 2007 06:15 Benedikt Sigurðsson Ehf. Samvinnutryggingar skilaði 13,8 milljarða hagnaði í fyrra. Stærsti eignarhlutur félagsins liggur í bréfum í Existu, að verðmæti 20,7 milljarðar. MYND/Valli
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Samvinnusjóðurinn verður stærsti hluthafinn í fjárfestingafélagi Gift, sem mun taka við eignum og skuldum við slit Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. Ætla má að hlutur félagsins gæti numið þrjátíu prósentum í hinu nýja félagi sem jafngildir tíu milljörðum króna ef horft er til eigin fjár Giftar. Aðrir hluthafar Giftar verða aðrir rétthafar í Ehf. Samvinnutryggingum, alls fjörutíu þúsund einstaklingar og lögaðilar, sem gerir félagið að langfjölmennasta almenningshlutafélagi landsins en til samanburðar voru hluthafar í Kaupþingi og Existu, sem höfðu flesta hluthafa innan sinna vébanda um áramótin, ríflega 31 þúsund talsins. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Reikningar Ehf. Samvinnutrygginga fyrir síðasta ár endurspegla þá miklu verðmætaaukningu sem varð þegar félagið skipti á hlutabréfum sínum í VÍS fyrir bréf í Existu sem fór á markað síðar sama ár. „Efnahagsreikningurinn tók stórt stökk bæði vegna þessa og eins vegna fjárfestinga sem við fórum í fyrra með lántökum,“ segir Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóri félagsins. Hagnaður nam 13,8 milljörðum króna og jókst um 386 prósent á milli ára. Eignir samstæðunnar námu fimmtíu milljörðum í árslok og eigið fé 21 milljarði króna. Benedikt telur að fjóra mánuði taki að lágmarki að færa hluthöfum hlutaféð. Meðal annars þarf að birta innköllun til kröfuhafa þannig að þeir hafi ráð til þess að lýsa kröfum sínum á félagið sem tekur tvo mánuði. Eitt af verkefnum þriggja manna skilanefndar er að leiðrétta skrá yfir þá sem voru tryggingatakar í árslok 1988 og 1993 miðað við þær breytingar sem hafa orðið á högum þeirra síðan. Samvinnutryggingasjóðurinn hefur tekið til sín þau réttindi sem tryggingatakar hafa glatað, ýmist við andlát eða þegar félög hafa misst réttindi sín. „Nú er gerð miklu sterkari og skýrari umgjörð um þann sjóð. Hann er gerður að sjálfseignarstofnun. Um hann gildir skipulagsskrá sem verður vonandi staðfest af dómsmálaráðuneyti.“ Ehf. Samvinnutryggingar eiga helmingshlut í Eignarhaldsfélaginu Andvöku g.f. Félagið, sem varð til þegar líftryggingafélagið Andvaka og líftryggingar Brunabótafélagsins sameinuðust undir merkjum Lífís árið 1990, er töluvert minna í sniðum en Ehf. Samvinnutryggingar. Það hefur þó vaxið ágætlega á síðustu árum og skilaði 2,6 milljarða króna hagnaði í fyrra sem var nærri tífalt meiri hagnaður en árið þar á undan. Eigið fé var tæpir fjórir milljarðar. Beinni eignaraðild Andvöku í tryggingarekstri er lokið og á félagið fyrst og fremst hlutabréf í Existu. „Það liggur ekkert fyrir hvað þeir vilja sem ráða því sem er fulltrúaráð Andvöku. Þau orð hafa verið látin falla að það væri eðilegt að það sama væri gert við Andvöku.“
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira