Stoðir verði stærsta fasteignafélag Norðurlanda 29. júní 2007 11:16 Keops á eignir víða í Skandinavíu, þar á meðal í Svíþjóð.
Íslenska fasteignafélagið Stoðir hefur lagt fram kauptilboð í danska fasteignaféalgið Keops og hyggst taka það af markaði. Í framhaldinu er stefnt að því að setja Stoðir á markað og gera það að stærsta fasteignafélagi Norðurlanda. Fram kemur á vef Kauphallarinnar að Stoðir tilboðið hljóði upp á á 24 danskar krónur á hlut, sem er 9 prósentum yfir lokagengi bréfanna í gær í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Þá býðst hluthöfum í Keops einnig hlutur í Stoðum fyrir bréf sín. Baugur er einn aðaleigandi Stoða og á sömuleiðis 30 prósent í Keops en ætlunin er að kaupa afganginn af bréfum Keops. Fram kemur á vef danska viðskiptablaðsins Börsen að Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar, hafi þegar ákveðið að selja sinn hlut til Stoða en hann nemur einnig 30 prósentum. Þannig hafa Stoðir þegar tryggt sér 60 af hlutafé Keops. Á vef Börsen er jafnfram haft eftir Skarphéðni Berg Steinarssyni, forstjóra Stoða, að ætlunin sé að búa til stærsta fasteignafélag Norðurlanda en Stoðir og Keops eru nú að svipaðri stærð og eiga eignir á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Þá á Baugur auk þess hluti í dönsku fasteignafélögunum Atlas og Nordicom og munu þeir hlutir renna inn í Stoðir. Að sögn Skarphéðins er rætt um að skrá Stoðir á markað á Íslandi en ekki er útilokað að það verði skráð í aðra kauphöll á Norðurlöndunum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira