Risasparisjóður í höfuðborginni 29. júní 2007 06:00 Höfuðstöðvar Byrs við Borgartún. Stofnfjárhafar í Byr fá 87 prósent í sameinuðum sparisjóði.
Sameinaður sparisjóður Byrs og Sparisjóðs Kópavogs (SPK) er metinn á um 45 milljarða króna miðað við síðasta viðskiptagengi í Byr. Stjórnir sparisjóðanna hafa skrifað undir samrunaáætlun sem miðast við 1. janúar 2007. Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, segir að góðum áfanga sé náð. „Nú erum við búnir að dekka útibúanetið á höfuðborgarsvæðinu. Við erum ekki með neina starfsemi í Kópavogi þannig að þessi fyrirtæki smellpassa saman.“ Byr er annar stærsti sparisjóður landsins en SPK sá fimmti stærsti. Aðeins SPRON er stærri sparisjóður í eignum talið en heildareignir sjóðanna tveggja nema nú um 140 milljörðum króna. Reka þeir alls níu útibú á höfuðborgarsvæðinu og sjá stjórnendur fyrir sér þrjú kjarnaútibú: Í Borgartúni, við Strandgötu í Hafnarfirði og í Kópavogi. Umsvif sjóðanna liggja einnig víða á sviði fjárfestinga en þeir eru stórir í Icebank, SP Fjármögnun og fjárfestingarbönkunum MP og VBS. „Stóra tækifærið liggur í því að sameiginlegur sparisjóður hefur miklu meiri sóknargetu en sjóðirnir höfðu áður út af stærð og styrkleika. Miðað við þann kostnað sem sjóðirnir hafa núna þá getur hann sótt miklu meiri tekjur,“ segir Birgir Ómar Haraldsson, stjórnarformaður SPK. Og bætir við: „Það verður sótt fram af ákveðni og fagmennsku.“ Stjórnendur sjóðanna ætla að taka sér góðan tíma til að fara vel yfir alla þætti starfseminnar, enda er það heilmikið verkefni að sameina sparisjóði. Þeir telja að til að byrja með verði starfsemi hins nýja sjóðs óbreytt. Stofnfjáreigendur í Byr munu fá 87 prósent í sameinuðum sjóði á móti þrettán prósentum stofnfjáreigenda í SPK. Til þess að mæta skiptihlutföllum verður stofnfé Byrs aukið um tæpa 2,8 milljarða króna og fer sú aukning að öllum líkindum fram í haust. Mikið ferli er framundan en bæði FME og Samkeppnisstofnun þurfa að taka málið til meðferðar auk þess sem gera þarf áreiðanleikakönnun. Forsvarsmenn Byrs þekkja vel til þessara mála frá sameiningu SPH og SPV í fyrra. Ef allt gengur eftir reikna stjórnarformennirnir með að samruninn gangi í gegn í september. Reiknað er með að tillaga um samruna verði þá lögð fyrir stofnfjáreigendur í báðum sjóðum. Stofnfjáreigendur í Byr eru um sex hundruð en hundrað færri í SPK.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira