Fjórða tap Denver í röð 1. febrúar 2007 13:20 NordicPhotos/GettyImages
Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni í nótt. Denver tapaði sínum fjórða leik í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Portland á útivelli. Utah skellti San Antonio og Kobe Bryant sneri aftur með látum eftir leikbann og færði Boston 13. tapið í röð. Portland lagði Denver 100-91 þar sem Allen Iverson gat ekki leikið með Denver vegna meiðsla. Carmelo Anthony skoraði 33 stig fyrir Denver en Zach Randolph var með 26 stig og 17 fráköst hjá Portland. Utah skellti San Antonio á heimavelli 97-93. Mehmet Okur skoraði 31 stig og hirti 11 fráköst hjá Utah en Tony Parker skoraði 27 stig fyrir San Antonio. LA Lakers lagði Boston úti 111-98 þar sem Kobe Bryant skoraði 43 stig, hirti 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Ryan Gomes skoraði 23 stig fyrir Boston. Atlanta lagði Golden State 115-94 og tryggði þar með fyrsta mánuðinn með jákvæðu vinningshlutfalli í nokkur ár. Joe Johnson skoraði 33 stig fyrir Atlanta en Al Harrington skoraði 21 stig gegn sínum gömlu félögum. Orlando lagði Milwaukee 98-73. Charlie Villenueva skoraði 23 stig fyrir Milwaukee en Hedo Turkoglu skoraði 17 fyrir Orlando. Toronto lagði Washington 119-109 á heimavelli í beinni útsendingu á NBA TV þar sem Chris Bosh stal senunni heldur betur. Bosh klikkaði á fjórum fyrstu skotum sínum í leiknum en hitti svo úr 12 í röð - þar af einu frá eigin vallarhelmingi í þriðja leikhluta - og sló félagsmetið. Bosh skoraði 34 stig í leiknum en Gilbert Arenas var með 27 stig hjá Washington. Charlotte burstaði New York 104-87 þar sem Gerald Wallace setti persónulegt met með 42 stigum, en Jamal Crawford skoraði 28 stig fyrir New York. Detroit malaði New Jersey 113-89 á útivelli. Rip Hamilton skoraði 24 stig en Mikki Moore 20 fyrir New Jersey. New Orleans lá heima fyrir Philadelphia 89-78. Andre Iquodala skoraði 22 stig en Devin Brown 17 fyrir New Orleans, sem endurheimti loksins leikstjórnandann magnaða Chris Paul úr meiðslum. Sacramento skellti Minnesota 100-98 á útivelli þar sem Kevin Martin skoraði 28 stig en Ricky Davis skoraði 24 stig fyrir Minnesota. Dallas vann enn einn leikinn með því að leggja Memphis 95-94, þar sem Mike Miller var næstum búinn að skjóta Memphis inn í tapaðan leik í fjórða leikhlutanum þar sem hann skoraði 20 af 33 stigum sínum. Dirk Nowitzki skoraði 26 stig og hirti 11 fráköst fyrir Dallas. Houston lagði Seattle 112-102. Ray Allen hjá Seattle og Tracy McGrady hjá Houston skoruðu 36 stig hvor. Loks vann LA Clippers góðan heimasigur á Chicago Bulls 110-98. Elton Brand skoraði 26 stig fyrir Clippers gegn gamla liðinu sínu, en Kirk Hinrich skoraði 25 stig fyrir Bulls.
NBA Mest lesið Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Íslenski boltinn Liverpool fær höfnun frá Brighton Enski boltinn „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Brann náði í frábær úrslit ytra Fótbolti Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Fótbolti Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn ÍR semur við bandarískan bakvörð Körfubolti „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Sjá meira