Biðin eftir tilboði Baugs á enda 23. júní 2007 06:00
Fjárfestahópur, sem ræður yfir 64,4 prósentum hlutafjár í Mosaic Fashions, móðurfélagi tískuverslanakeðja, hefur loks lagt fram formlegt yfirtökutilboð í Mosaic Fashions upp á 17,5 krónur á hlut. Eftir því hefur verið beðið síðan yfirtökuviðræður hófust á milli stjórnar félagsins og Baugs og fleiri fjárfesta í byrjun maí. Að fjárfestahópnum standa F-Capital ehf., dótturfélag Baugs, Kaupþing, Gnúpur fjárfestingafélag, Kevin Stanford, Karen Millen, The Millen Life Interest Settlement, Don M Ltd., Tessera Holding og stjórnendendur Mosaic, þar á meðal forstjórinn Derek John Lovelock og fjármálastjórinn Richard Glanville. Mosaic Fashions er metið á 50,7 milljarða króna út frá tilboðsverði sem er hæsta verð sem fjárfestarnir innan hópsins hafa greitt fyrir hlutabréf í Mosaic á undanförnum sex mánuðum. Tilboðið er um 7,4 prósentum hærra en sem nam lokaverði 3. maí, daginn áður en viðræður hófust og um 11,1 prósenti umfram meðalverð hlutabréfa á sex mánaða tímabili fyrir umrædda dagsetningu. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, segir að tilboðið sé 28,7 prósentum hærra en útboðsgengi félagsins þegar það fór á markað fyrir tveimur árum. Tilboðsverðið er því mjög gott fyrir hluthafa. Með afskráningunni gefist færi á að efla félagið í næði. Ekki hafa þó allir verið jafn sannfærðir um sanngirni þess tilboðs sem beðið hefur verið eftir. Greiningardeild Landsbankans telur að tilboðsverðið endurspegli ekki að fullu virði Mosaic og metur hlutinn á 17,9 krónur.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira