Stjórnin styður Novator 23. júní 2007 06:30 Sindri Sindrason, stjórnarmaður í Actavis, kynnti í gær ákvörðun stjórnarinnar að mæla með nýju tilboði Novators. MYND/Anton
Stjórn Actavis ráðleggur hluthöfum að samþykkja nýtt yfirtökutilboð Novators í félagið. Tilboðið hljóðar upp á 1,075 evrur á hlut, rúmar níutíu krónur. Það nemur um 187 milljörðum. Stjórn Actavis mælir einróma með nýju yfirtökutilboði Novators, eignarhaldsfélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, í allt hlutafé félagsins í A-flokki. Álitið byggir stjórnin á mati alþjóðlega fjárfestingarbankans JP Morgan sem fenginn var henni til ráðgjafar. Nýtt tilboð hljóðar upp á 1,075 evrur á hlut. Það nemur rúmum níutíu krónum. Fyrra tilboðið nam 0,98 evrum á hlut. Því tilboði hafði stjórnin ráðið hluthöfum frá að samþykkja. Björgólfur og aðilar honum tengdir eiga 38,5 prósent af útgefnum hlutabréfum í A-flokki. Miðað við nýtt tilboðsverð er hann tilbúinn til að greiða 187 milljarða króna fyrir það hlutafé sem eftir stendur, eða 61,5 prósent. Tilboðinu fylgir sá fyrirvari að skyldi Novator ákveða að selja tíu prósent eða meira af hlut sínum, innan tólf mánaða frá því tilboðstíma lýkur, fái hluthafar sérstaka aukagreiðslu. Þannig myndi tilboðsgjafi „deila hlutfallslega með hluthöfum sem samþykktu yfirtökutilboðið mismun á hinu hærra tilboðsverði og söluverðinu“. Sindri Sindrason, einn þeirra þriggja stjórnarmanna sem mátu tilboð Novators, segir þá klausu í tilboðinu ekki hafa ráðið úrslitum um samþykki stjórnarinnar. Hins vegar hefði tilboðið hugsanlega þurft að vera hærra ef hún hefði ekki fylgt með. „Þetta er trygging fyrir því að ef sala félagsins er í pípunum fái hluthafar sitt út úr sölunni líka. Okkur er sagt að svo sé ekki og við höfum enga ástæðu til að véfengja það.“ Sindri á von á því að flestir af stærstu hluthöfum félagsins muni fylgja ráðleggingum stjórnarinnar. Nýja tilboðið er 19,6 prósentum hærra en gengi bréfa Actavis var þann 10. maí síðastliðinn, daginn áður en Novator tilkynnti um fyrirhugað yfirtökutilboð. Í yfirlýsingu frá Björgólfi Thor Björgólfssyni segir hann nýtt tilboð endurspegla verðmæti félagsins ríflega. „Það er ánægjulegt að stjórn Actavis og ráðgjafar hennar, JP Morgan, telja tilboðið áhugavert og sanngjarnt og að þessi óháði aðili, sem þekkir félagið mjög vel, skuli mæla með tilboðinu við hluthafa þess. Ég er ánægður að samstaða skuli vera að myndast um hvernig framtiðarhagsmunum Actavis sé best borgið.” Novator mun að öllum líkindum birta nýja tilboðið formlega á mánudag. Frá og með þeim degi hafa hluthafar tvær vikur til að gera upp hug sinn. Gengi bréfa í Actavis hækkaði um 1,72 prósent í Kauphöll Íslands í gær. Lokagengi var 88,50 krónur á hlut, tveimur prósentum undir nýju tilboði.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært fyrir sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira