Dómar réttlæta ranglætið 12. júlí 2007 06:00 Hvað eftir annað þarf þjóðin að láta sér lynda að dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur og Hæstaréttar verði sér og henni til skammar hérlendis sem erlendis. Þeir eru að verða alræmdir fyrir túlkun sína á réttu og röngu. Leita þarf til vanþróaðra einræðisríkja til að sambærileg túlkun á réttlæti finnist. Það er óásættanlegt að reyndustu dómarar þjóðarinnar skuli svo oft klúðra mikilvægum málum sem raun er á. Þjóðin má ekki una því að æðstu dómarar hennar séu svo skyni skroppnir að þeir láti slægvitra lögfræðinga vefja þeim um fingur sér, um leið og réttlætið er fótum troðið. Fimmta maí var pólskur maður sýknaður í héraðsdómi, en hann hafði nauðgað konu á salerni í kjallara Hótels Sögu. Dómurinn telur framburð stúlkunnar einkar trúverðugan, en dæmir þó þvert á hann. Þeim fannst nefnilega ofbeldið ekki nógu sannfærandi þó nauðgarinn viðurkenndi níðings aðfarir og að ótrúlegt sé að stúlkan hafi boðið ókunnum manni á klósettið með sér. Dómararnir minna á sofandi afglapa, svo utangátta var skilningur þeirra á viðbrögðum stúlkunnar við óvæntri árás ofbeldismanns. Þeir litu framhjá þeirri staðreynd að afleiðingar ofsahræðslu eru oft áfall sem veldur máttleysi sem skýrir meðal annars hvers vegna ekkert heyrist í stúlkunni. Svo er mögulegt að níðingurinn hafi haldið fyrir vit hennar. Málið hlýtur að fara fyrir Hæstarétt og lengra ef þarf. Annar áfellisdómur yfir íslensku réttarfari er að Mannréttindadómstóllinn skuli dæma íslenska ríkið brotlegt þegar Hæstiréttur sýknaði það í máli Söru Lindar Eggertsdóttur. Þar nýtti Hæstiréttur umsögn hlutdrægra aðila. Málið fór fyrst fyrir héraðsdóm sem dæmdi stúlkunni rúmar 28 milljónir. Hæstiréttur sýknaði svo ríkið eftir að ný gögn bárust frá læknaráði. Þar var ekki gætt hlutleysis. Vonandi sér ríkið sóma sinn í að greiða stúlkunni bæturnar sem héraðsdómur dæmdi. En Mannréttindadómstóllinn telur málflutning hans vandaðan. Fyrir mörgum árum nauðguðu þrír menn 13 ára stúlku og voru sýknaðir vegna ungs aldurs og að þeir höfðu aldrei nauðgað áður. Þeir voru 17 og 18 og 19 ára gamlir. Ég skrifaði harðorða ádeilu á réttarfarið og sakaði það um að gefa veiðileyfi á fermingarbörn. Samkvæmt dómnum var mönnum sem höfðu hreint sakavottorð og voru innan tvítugs, heimilt að nauðga börnum. Höfundur er trésmíðameistari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Hvað eftir annað þarf þjóðin að láta sér lynda að dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur og Hæstaréttar verði sér og henni til skammar hérlendis sem erlendis. Þeir eru að verða alræmdir fyrir túlkun sína á réttu og röngu. Leita þarf til vanþróaðra einræðisríkja til að sambærileg túlkun á réttlæti finnist. Það er óásættanlegt að reyndustu dómarar þjóðarinnar skuli svo oft klúðra mikilvægum málum sem raun er á. Þjóðin má ekki una því að æðstu dómarar hennar séu svo skyni skroppnir að þeir láti slægvitra lögfræðinga vefja þeim um fingur sér, um leið og réttlætið er fótum troðið. Fimmta maí var pólskur maður sýknaður í héraðsdómi, en hann hafði nauðgað konu á salerni í kjallara Hótels Sögu. Dómurinn telur framburð stúlkunnar einkar trúverðugan, en dæmir þó þvert á hann. Þeim fannst nefnilega ofbeldið ekki nógu sannfærandi þó nauðgarinn viðurkenndi níðings aðfarir og að ótrúlegt sé að stúlkan hafi boðið ókunnum manni á klósettið með sér. Dómararnir minna á sofandi afglapa, svo utangátta var skilningur þeirra á viðbrögðum stúlkunnar við óvæntri árás ofbeldismanns. Þeir litu framhjá þeirri staðreynd að afleiðingar ofsahræðslu eru oft áfall sem veldur máttleysi sem skýrir meðal annars hvers vegna ekkert heyrist í stúlkunni. Svo er mögulegt að níðingurinn hafi haldið fyrir vit hennar. Málið hlýtur að fara fyrir Hæstarétt og lengra ef þarf. Annar áfellisdómur yfir íslensku réttarfari er að Mannréttindadómstóllinn skuli dæma íslenska ríkið brotlegt þegar Hæstiréttur sýknaði það í máli Söru Lindar Eggertsdóttur. Þar nýtti Hæstiréttur umsögn hlutdrægra aðila. Málið fór fyrst fyrir héraðsdóm sem dæmdi stúlkunni rúmar 28 milljónir. Hæstiréttur sýknaði svo ríkið eftir að ný gögn bárust frá læknaráði. Þar var ekki gætt hlutleysis. Vonandi sér ríkið sóma sinn í að greiða stúlkunni bæturnar sem héraðsdómur dæmdi. En Mannréttindadómstóllinn telur málflutning hans vandaðan. Fyrir mörgum árum nauðguðu þrír menn 13 ára stúlku og voru sýknaðir vegna ungs aldurs og að þeir höfðu aldrei nauðgað áður. Þeir voru 17 og 18 og 19 ára gamlir. Ég skrifaði harðorða ádeilu á réttarfarið og sakaði það um að gefa veiðileyfi á fermingarbörn. Samkvæmt dómnum var mönnum sem höfðu hreint sakavottorð og voru innan tvítugs, heimilt að nauðga börnum. Höfundur er trésmíðameistari.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar