Verðbólguþrýstingur enn of mikill 16. maí 2007 11:24 MYND/Anton Brink
Davíð Oddsson seðlabankastjóri, segir undirliggjandi verðbólgu enn langt yfir verðbólgumarkmiðum bankans og að verðbólga hafi hjaðnað nokkru hægar en spá bankans í mars hafi gert ráð fyrir. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Seðlabankanum þar sem kynntur var rökstuðningur bankans fyrir því að halda stýrivöxtum óbreyttum, eða í 14,25 prósentum. Fram kom í rökstuðningnum að verðbólguhorfur næstu ára væru áþekkar og í mars og að framvinda efnahagsvísbendinga það sem af er ári virtist í aðalatriðum í samræmi við þjóðhagsspá Seðlabankans. Vöruútflutningur hefði þó sennilega verið meiri en spáð var og fjölgun starfa benti til þess að umsvif í efnahagsífinu yrðu ekki minni næstu mánuði en falist hafi í spánni. Þá benti Davíð á í rökstuðningi bankans að hagstæð skilyrði á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, háir innlendir vextir og bjartsýni í efnahagslífinu hefðu stuðlað að háu gengi krónunnar en mikill viðskiptahalli og tiltölulega hátt raungengi fælu áfram í sér verulega hættu á lækkun gengisins. Þá gætu verðbólguhorfur versnað, einkum ef gengið lækkaði áður en það drægi úr spennu á vinnumarkaði sem engin teikn væru um enn. Þá gætu verðlagsáhrif launahækkana undanfarið ár langt umfram framleiðnivöxt enn átt eftir að koma fram að fullu. Seðlabankinn gerir ráð fyrir að ná verðbólgumarkmiðum sínum á þriðja fjórðungi þessa árs en á næsta ári ef litið er fram hjá áhrifum lækkunar neysluskatta í mars. „Þótt horfurnar nú séu í meginatriðum svipaðar er ítrekað að meiri hætta er talin á að verðbólga verði meiri en spáð var en að hún verði minni. Nýleg verðþróun, áframhaldandi spenna á vinnumarkaði, mikill viðskiptahalli og sterk eftirspurn undirstrika þessa hættu. Versni verðbólguhorfur frá því sem gert var ráð fyrir í marsspánni mun Seðlabankinn þurfa að bregðast við," segir í rökstuðningum.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira