Óbreyttir stýrivextir taldir langlíklegastir Óli Kristján Ármannsson skrifar 16. maí 2007 08:15 Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, kynnti í síðasta mánuði nýja skýrslu um fjármálastöðugleika hér á landi. Í dag tilkynnir bankinn um stýrivaxtaákvörðun sína. Fréttablaðið/Anton
Verðbólga hefur reynst þrálát í hagkerfinu og af þeim sökum er samdóma álit greiningardeilda bankanna að Seðlabanki Íslands haldi stýrivöxtum óbreyttum í 14,25 prósentum á vaxtaákvörðunardegi sínum í dag. Þá eru óbreyttir vextir í samræmi við spá Seðlabankans sjálfs eins og hún birtist í Peningamálum, efnahagsriti bankans, við síðustu vaxtaákvörðun í lok mars. Seðlabankinn tók þá upp nýja stefnu í birtingu hagspáa og kynnti þann stýrivaxtaferil sem bankinn taldi líklegastan. Bankinn gerði þá ráð fyrir því að ekki þyrfti að hækka stýrivexti frekar, en að vaxtalækkunarferli myndi ekki hefjast fyrr en á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Greiningardeildir hafa hins vegar talið að vaxtalækkunarferlið gæti mögulega hafist fyrr, en eins og greiningardeild Glitnis bendir á hefur verðbólguþróunin verið í aðra átt. „Húsnæðismarkaður er mjög líflegur þessa dagana, ekki síst vegna betra aðgengis almennings að lánsfé sem nú er í auknum mæli tengt erlendri mynt á tiltölulega lágum vöxtum. Auk heldur er atvinnuleysi enn afar lágt og laun hafa hækkað talsvert hratt undanfarið. Innlendur kostnaðarþrýstingur er því töluverður og virðist vera að brjótast út í verði vöru og þjónustu um þessar mundir. Ef verðbólga reynist umtalsverð í næsta mánuði og umsvif verða áfram veruleg á íbúðamarkaði kann svo að fara að næstu Peningamál, sem út koma í júlíbyrjun, teikni öllu dekkri mynd af verðbólguþróun en þá sem dregin var upp í mars,“ segir í nýrri úttekt bankans og því ekki talið útilokað að vextir haldist hér háir lengur en gert hafi verið ráð fyrir til þessa. Greiningardeild Kaupþings tekur í sama streng og segir ljóst að talverður verðbólguþrýstingur sé í hagkerfinu um þessar mundir. „Að mati Greiningardeildar á Seðlabankinn enn langt í land með að ná tökum á verðbólgunni og harla ólíklegt að verðbólgumarkmið náist á árinu. Greiningardeild gerir ráð fyrir að áfram muni draga úr 12 mánaða verðbólgu á næstu mánuðum en að verðbólgan haldist yfir markmiði fram til ársins 2008. Óvissuþættir eru þó margir og virðast flestir vera upp á við eins og staðan er í dag,“ segir Kaupþing og gerir ráð fyrir „hörðum tóni“ úr Seðlabankanum í dag. Greiningardeild Landsbankans telur einnig að Seðlabankinn standi við lækkunarferilinn sem hann birti í Peningamálum og að stýrivextir lækki ekki fyrr en í nóvember og verði 13,75 prósent um áramótin. Spá greiningardeildarinnar nú er seinkun frá fyrri spá um stýrivaxtalækkun. Í nýju sérriti um stýrivaxtaspá er þannig talið ósennilegt að vextir verði lækkaðir í byrjun september og bent á að í september séu yfir 80 milljarðar króna jöklabréfa á gjalddaga og því hætta á að krónan veikist ef vaxtamunur minnki hratt. „Horfur á áframhaldandi viðskiptahalla á næstu árum setja einnig þrýsting á krónuna til veikingar til lengri tíma litið og þess vegna mun Seðlabankinn ekki flýta sér um of við vaxtalækkanir,“ segir greiningardeild Landsbankans.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira