Ekkert lát á aðflutningi vinnuafls 19. júní 2007 18:20
Ekkert lát er á aðflutningi erlends vinnuafls hingað til lands samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun. Fjöldi veittra atvinnuleyfa jókst verulega í maí eða um 54 % á milli ára sem bendir til þess að aukinni eftirspurn eftir vinnuafli sé svarað með aðflutningi vinnuafls frá öðrum löndum. Líklegt er að ekkert lát verði á aðflutningi vinnuafls meðan atvinnuleysi er í sögulegri lægð eða 1.1 % um þessar mundir. Þessar tölur eru enn ein vísbendingin um að mikil umframeftirspurn sé hér á landi. Það sést meðal annars á aukinni veltu á fasteignamarkaði. Þetta kemur fram í hálffimmfréttum Kaupþings. Íslenska hagkerfið hefur vaxið mikið á síðustu árum og sem dæmi jókst það um 17% á árunum 2003 til 2005. Svona vaxtahraða er erfitt að viðhalda án þess að verðbólga láti á sér kræla og algerlega ómögulegt án innflutnings erlends vinnuafls. Erlendum ríkisborgurum búsettum hér á landi hefur fjölgað mikið síðustu ár. Um síðustu áramót voru 18.652 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eða 6% af heildamannfjölda á landinu. Inn í þeim tölum eru ekki þeir 5600 erlendu ríkisborgara sem fengið hafa íslenskt ríkisfang síðustu 16 árin. Pólverjar eru nú um 2% landsmanna og þá eru ótaldir þeir sem hlotið hafa íslenskt ríkisfang. Mikill kippur kom í aðflutning Pólverja til landsins árið 2004. Á sama ári gengu þeir í ESB og fengu aðgang að vinnumörkuðum Evrópska Efnahagssvæðisins. Það skýrir að miklu leyti aukninguna. Vöxtur hefur orðið í öllum hópum aðfluttra erlendra ríkisborgara síðan 2000 að Norðurlandabúum undanskildum. Hlutfall þeirra hér á landi hefur verið tiltölulega stöðugt undanfarin 17 ár.
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira